Líkamsárásir og leigubílasvik í nótt Aðalsteinn Kjartansson skrifar 15. mars 2015 09:15 Mynd tengist frétt ekki beint. Vísir/Kolbeinn Tumi
Leigubílstjóri kallaði eftir aðstoð lögreglu vegna farþega í Austurbænum í nótt. Þegar lögreglan kom á staðinn neitaði farþeginn að gefa upp nafn og kennitölu en hann neitaði einnig að greiða fyrir farið. Í tilkynningu lögreglunnar kemur fram að hann hafi verið færður á lögreglustöðina á Hverfisgötu þar sem hann er enn vistaður í fangageymslu. Hann verður yfirheyrður vegna atviksins síðar í dag. Þetta var ekki það eina sem lögreglan gerði í gær en tilkynnt var um mann í Hafnarfirði sem gekk á milli bíla og reyndi að komast inn í þá. Þegar lögreglan kom á staðinn kom í ljós að bifreiðin sem hann sjálfur ók var með röng númer og var hann handtekinn og stungið í fangageymslu. Securitas tilkynnti lögreglunni svo um innbrot í Garðabæ en húseigendurnir voru ekki heima við . Þrír voru handteknir í húsinu og fluttir í fangageymslu en samkvæmt tilkynningu lögreglu verða þeir yfirheyrðir vegna málsins síðar í dag. Í miðbænum var óskað eftir aðstoð vegna manns sem dyravörður á skemmtistað hafði tekið tökum. Maðurinn var handtekinn. Stuttu síðar var maður skallaður og sleginn á skemmtistað í bænum en árásarmaðurinn er ókunnur og rannsakar lögreglan málið. Tilkynnt var um að stúlka hefði verið sleginn í andlitið á skemmtistað en ekki kemur fram í tilkynningu lögreglu hvort gerandinn hafi verið handtekinn.
Mest lesið „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Erlent Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Erlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Sjá meira