Ekki ljóst hvort A-prófin séu komin til að vera sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 17. mars 2015 11:59 "Þetta snýst í sjálfu sér um það að reyna að tryggja það að nemendur sem hefja námið geti tekist á við það,“ segir Þórður. vísir/gva
Fjórar deildir innan Háskóla Íslands munu í ár notast við svokölluð A-próf til að taka inn nemendur. Allar notast þær við sama inntökuprófið en það er til þess fallið að spá fyrir um námsárangur stúdenta við háskóla. Um er að ræða lagadeild, hjúkrunarfræðideild, hagfræðideild og læknadeild. Tvær síðastnefndu nota einnig frekari próf til inntöku nema. Hjúkrunarfræði- og læknadeildir munu í fyrsta sinn í ár notast við prófin. Fyrstu A-prófin, eða aðgangspróf fyrir háskólastig, voru haldin árið 2013. Þá var það hagfræðideild sem notaðist við prófin og fylgdi lagadeild í kjölfarið. Allir þeir sem þreyttu prófið í lagadeild í fyrra náðu prófinu og komust þar af leiðandi í háskólann.Minna um brottföll Þórður Kristinsson, sviðsstjóri kennslumála, segir að verkefnið sé enn í þróun og því sé ekki hægt að segja til um hvort A-prófin séu komin til að vera. Meiri reynslu þurfi en að ljóst sé að þau hafi minnkað brottföll nemenda úr einstaka deildum. „Það hefur verið töluvert brottfall í bæði hagfræði- og lagadeild. Í byrjun var það kannski ástæðan að reyna að draga úr brottfalli í greinum þar sem eru mjög stórir hópar sem byrja. Hagfræðideildin er ekki mjög stór deild en það var byrjað þar, en það er deildin sjálf sem vildi taka upp prófin,“ segir Þórður.Stendur öllum deildum til boða Þá segir hann það ekki liggja fyrir hvort fleiri deildir muni taka upp prófin. Það sé ákvörðun hverrar deildar fyrir sig og standi öllum 25 deildum skólans til boða. Þó séu líkur á að fleiri deildir muni notast við prófin í framtíðinni. „Þetta snýst í sjálfu sér um það að reyna að tryggja það að nemendur sem hefja námið geti tekist á við það. Að nemendur séu búnir að afla sér undirbúnings sem geri þeim kleift til að stunda námið,“ segir hann. A-prófið, eða aðgangspróf fyrir háskólastig, er hugsað sem færnipróf en ekki þekkingarpróf. Því er ætlað að meta getu stúdenta í málnotkun, talnaleikni, rökhugsun og til skilnings á texta og fleiri þáttum sem reynir á í háskólanámi. Haldin verða tvö próf í ár. Fyrsta prófið verður haldið næsta laugardag, 21. mars og hið síðara 12. júní. Frekari upplýsingar má finna á vef Háskóla Íslands.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Fleiri fréttir Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Sjá meira