Árlegt söfnunarátak ABC barnahjálpar hefst á föstudaginn Stefán Árni Pálsson skrifar 17. mars 2015 12:04 Forseti Íslands mun formlega hefja söfnunina á Bessastöðum kl. 13 á föstudaginn. vísir/aðsend
Árlegt söfnunarátak ABC barnahjálpar, Börn hjálpa börnum, hefst formlega 20. mars næstkomandi og mun standa yfir til 19. apríl. Þetta er í 18. sinn sem þessi söfnun fer fram. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ABC á Íslandi. Forseti Íslands mun formlega hefja söfnunina á Bessastöðum kl. 13 á föstudaginn 20. mars og munu 33 nemendur úr 5. bekk Fossvogsskóla verða viðstaddir. Forsetinn mun setja fyrstu framlögin í baukana sem börnin hafa með sér. Átakið er unnið í samstarfi við grunnskóla landsins. Börnum er úthlutað götum í sínu skólahverfi þar sem þau ganga í hús tvö og tvö saman og safna í söfnunarbauka. Í ár verður safnað fyrir öðrum áfanga byggingu skóla og heimavistar fyrir ABC starfið í Nairobi í Kenýa. Grunnur að fyrstu hæð var lagður eftir söfnunina Börn hjálpa börnum árið 2013 og var fyrsta hæðin byggð í fyrra fyrir söfnunarféð með stuðningi frá utanríkisráðuneytinu. Í ár verður safnað fyrir annarri hæð sömu skólabyggingar sömuleiðis með stuðningi frá utanríkisráðuneytinu. Í fyrra var söfnunarfénu varið í að byggja heimavist fyrir fátækar stúlkur í Machike í Pakistan en rúmlega 8 milljónir króna söfnuðust þá. Alls tóku 88 grunnskólar þátt í söfnuninni á síðasta ári og hafa nemendur ávallt staðið sig með stakri prýði og reynst mikilvægir sendiherrar starfsins. Þeim sem vilja leggja söfnuninni lið er bent á söfnunarreikningsnúmer: 515-14-110000. Kt: 690688-1589
Mest lesið Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Erlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Erlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Erlent Fleiri fréttir Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Sjá meira