Meintur nauðgari þarf að víkja úr sal Samúel Karl Ólason skrifar 18. mars 2015 20:35 "Það er mat sálfræðingsins að slík reynsla gæti valdið raunverulegu bakslagi og hægt á bata hennar. Mikilvægt sé því að brotaþoli verði ekki sett í þær aðstæður.“ Vísir/Getty/Hari
Meintum nauðgara verður gert að víkja úr dómsal þegar brotaþoli ber vitni í nauðgunarmáli í Héraðsdómi Reykjaness. Hæstiréttur telur að nærvera hans gæti orðið brotaþola sérstaklega íþyngjandi og haft áhrif á framburð hennar. Slík ákvörðun telst sjaldgæf. Áður hafði Héraðsdómur Reykjaness komist að sömu niðurstöðu, en Hæstiréttur staðfesti úrskurðinn í gær, en dóminn má sjá hér í heild sinni. Manninum er gert að hafa notfært sér svefndrunga og ölvun hennar til að nauðga henni í nóvember 2013. Þegar hún vaknaði mun hann hafa kýlt í hnakka hennar með þeim afleiðingum að hún hlaut kúlu aftan á hnakka og aðra kúlu ofarlega á hnakka vinstra megin og þreifieymsli á vinstra kjálkabeini. Aðalmeðferð málsins átti að fara fram þann 13. mars síðastliðinn, en réttargæslumaður konunnar fór fram á að maðurinn yrði færður úr salnum á meðan hún gæfi skýrslu. Saksóknari tók undir þá beiðni. Maðurinn hafnaði beiðninni, en konan vísaði til vottorðs sálfræðings um alvarlegar afleiðingar sem meinta nauðgunin hafði á hana. Þar kemur fram að hún sýni alvarleg áfallastreitueinkenni sem rekja megi til meintrar nauðgunar og hafi þau aukist eftir því sem aðalmeðferðin hafi dregist nær. „Það er mat sálfræðingsins að slík reynsla gæti valdið raunverulegu bakslagi og hægt á bata hennar. Mikilvægt sé því að brotaþoli verði ekki sett í þær aðstæður.“ Maðurinn vísaði hins vegar til 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar og til 1. mgr. og d. liðar 3. mgr. 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu máli sínu til stuðnings, sbr. lög nr. 62/1994. Einnig vísaði hann til meginreglunnar um réttláta málsmeðferð sem í felist réttur ákærða til að vera viðstaddur öll þinghöld í málinu. Í dómi héraðsdóms segir að það sé meginregla sakamálaréttarfars að ákærði „eigi þess kost að vera viðstaddur aðalmeðferð og önnur þinghöld í máli sem höfðað hefur verið gegn honum.“ Niðurstaða dómsins var að hagsmunir brotaþola af því að geta eins og á stendur gefið skýrslu án nærveru ákærða vegi þyngra en hagsmunir ákærða af því að vera viðstaddur skýrslugjöf brotaþola.
Mest lesið „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð Innlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Erlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Erlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Innlent Fleiri fréttir Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Skipar Eirík og Hildi sem landsréttardómara Landrisi í Öskju er lokið Nú má heita Hugríkur Húrinn og Aelía Rúa Ótímabært að hugsa um áhrif mögulegs verkfalls á sjúkraflug „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ „Þjóðin á rétt á að vita“ Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja „Í þessu máli þá sat viðkomandi ekki skemur í fangelsi vegna lagabreytingarinnar“ „Bjór var drukkinn á Íslandi áður en Alþingi leyfði það“ Best að vera ekki með stórar yfirlýsingar Dómari kannar aðbúnað barna í vist á einkaheimilum Sjá meira