Stígamót hljóta Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 19. mars 2015 19:45 Vinningshafar Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins. Fulltrúar Stígamóta, fulltrúar Grensásdeildar, Jón Freyr Þórarinsson, Halldór og Kári Auðar og Svanssynir, Hafdís Árnadóttir, Ólafur Ragnar Grímsson ásamt dómnefndinni: Guðmundi Andra Thorssyni, Guðrúnu Ögmundsdóttur og Kristínu Þorsteinsdóttur. Vísir/Ernir
Grasrótarsamtökin Stígamót hlutu Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins að þessu sinni fyrir baráttu gegn kynferðisofbeldi og þá aðstoð sem samtökin veita þeim sem beittir hafa verið kynferðisofbeldi. Verðlaunaféð er tólf hundruð þúsund krónur. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti Samfélagsverðlaunin, sem veitt voru í tíunda sinn í dag. Í rökstuðningi dómnefndar segir að í þau 25 ár sem Stígamót hafa starfað hafi þau gert kynferðisofbeldi sýnilegt, komið því upp á yfirborðið og eru ómetanlegt bakland fyrir alla þá sem á stuðningi þurfa að halda. Aðrir sem voru tilnefndir til Samfélagsverðlaunanna eru UN Women á Íslandi og Rótin. Starfsfólk Grensásdeildar Landspítalans var valið hvunndagshetjur ársins fyrir óeigingjarnt og mikilvægt starf við að koma fólki aftur út í lífið eftir áföll. Jón Freyr Þórarinsson, kennari og skólastjóri, fékk verðlaun í flokknum Frá kynslóð til kynslóðar fyrir að fara ótroðnar slóðir við kennslu barna, meðal annars með danskennslu. Tvíburabræðurnir Halldór og Kári Auðar- og Svanssynir hlutu verðlaun fyrir að draga úr fordómum samfélagsins með því að deila með þjóðinni reynslu sinni af geðsjúkdómum í viðtali við Fréttablaðið á liðnu ári. Hafdís Árnadóttir hlaut heiðursverðlaun fyrir þrjátíu ára starf sitt í Kramhúsinu. Í rökstuðningi dómnefndar segir að Kramhúsið sé í raun fyrsti staður fjölmenningar á Íslandi þar sem listamenn frá ólíkum menningarheimum hafa komið að kennslu og sköpun. Þannig hafi Hafdís og starfsemi Kramhússins stuðlað að fordómaleysi og víðsýni í samfélaginu. Var Hafdísi þakkað fyrir að hreyfa við fólki í margvíslegum skilningi orðsins. Ríflega fjögur hundruð tilnefningar til Samfélagsverðlaunanna bárust frá lesendum Fréttablaðsins. Markmiðið með verðlaununum er að beina sjónum að þeim góðu verkum sem unnin eru í samfélaginu. Formaður dómnefndar var Kristín Þorsteinsdóttir, útgefandi og aðalritstjóri 365. Aðrir í dómnefnd voru Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur og Guðrún Ögmundsdóttir, fyrrverandi Alþingismaður og tengiliður vistheimila hjá innanríkisráðuneytinu.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira