Mónakó og Monte Carlo fá ekkert frá Reykjavík Aðalsteinn Kjartansson skrifar 19. mars 2015 23:26 Eigendur Monte Carlo vildu bætur frá Reykjavík vegna neikvæðrar umsagnar. Vísir/Daníel
Eigendur Monte Carlo og Mónakó fá ekki skaðabætur frá Reykjavíkurborg vegna umsagnar sem borgin skilaði til lögreglunnar vegna endurnýjunar á rekstrarleyfum staðanna tveggja. Hæstiréttur kvað upp dóm í málinu í dag . Margeir Margeirsson, vert á börunum tveimur, stefndi borginni og fór fram á skaðabætur upp á tæpar fimmtán milljónir króna vegna tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir á árunum 2007 til 2012 þegar erfiðlega gekk að endurnýja rekstrarleyfi staðanna. Borgarráð Reykjavíkur gaf út neikvæðar umsagnir vegna rekstrarleyfanna og lagðist þannig gegn því að þau yrðu endurnýjuð. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu tók mið af því í ákvörðun sinni og hafnaði endurnýjun. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu var tvívegis gerður afturreka með ákvarðanir sem vörðuðu Mónakó og Monte Carlo. Í fyrra skiptið, árið 2008, var ákveðið að takmarka opnunartíma þeirra, og árið 2012 var ekki fallist á endurnýjun rekstrarleyfisins. Málin rötuðu á borð innanríkisráðuneytisins þar sem lögreglunni var gert að taka málin upp að nýju. Meðal annars var það niðurstaða ráðuneytisins að ekki hafði verið gætt að andmælarétti Margeirs í umsagnarferlinu auk þess sem borgin hafði í umsögnum sínum farið út fyrir valdsvið sitt. Þrátt fyrir það fellst dómurinn ekki á að Reykjavíkurborg hafi bakað sér skaðabótaskyldu en samkvæmt lögum á borgin að gefa umsögn.
Tengdar fréttir Eigandi Monte Carlo ætlar að stefna borginni og lögreglunni Margeir Margeirsson, eigandi veitingastaðanna Mónako og Monte Carlo á Laugavegi, ætlar að höfða skaðabótamál gegn lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavík vegna þeirrar ákvörðunar að synja stöðunum um veitingaleyfi. Ákvörðunin var tekin á grundvelli neikvæðrar umsagnar borgarráðs, en innanríkisráðuneytið hefur úrskurðað að með umsögninni hafi borgarráð farið út fyrir umsagnarsvið sitt og með því brotið gegn stjórnsýslulögum. Margeir segist í fréttastofu hafa varið um 10 milljónum króna í lögfræðikostnað vegna málsins. 18. júní 2012 17:00 Dæturnar halda kyndlinum á lofti: Margeir á Mónakó gefst ekki upp Munnlegur málflutningur í skaðabótamáli rekstrarfélaga öldurhúsanna Mónakó og Monte Carlo gegn Reykjavíkurborg fór fram í Hæstarétti í dag. 16. mars 2015 14:08 Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Erlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira
Eigandi Monte Carlo ætlar að stefna borginni og lögreglunni Margeir Margeirsson, eigandi veitingastaðanna Mónako og Monte Carlo á Laugavegi, ætlar að höfða skaðabótamál gegn lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavík vegna þeirrar ákvörðunar að synja stöðunum um veitingaleyfi. Ákvörðunin var tekin á grundvelli neikvæðrar umsagnar borgarráðs, en innanríkisráðuneytið hefur úrskurðað að með umsögninni hafi borgarráð farið út fyrir umsagnarsvið sitt og með því brotið gegn stjórnsýslulögum. Margeir segist í fréttastofu hafa varið um 10 milljónum króna í lögfræðikostnað vegna málsins. 18. júní 2012 17:00
Dæturnar halda kyndlinum á lofti: Margeir á Mónakó gefst ekki upp Munnlegur málflutningur í skaðabótamáli rekstrarfélaga öldurhúsanna Mónakó og Monte Carlo gegn Reykjavíkurborg fór fram í Hæstarétti í dag. 16. mars 2015 14:08