Skyndihjálparmaður ársins skilaði iPhone til að styrkja Rauða krossinn Stefán Árni Pálsson skrifar 4. mars 2015 14:30 Hjálmar Karlsson er að vonum virkilega ánægður með Önnu Úrsúlu og allt Valsliðið. VÍSIR „
Við á Hjálparsímanum 1717 erum afskaplega þakklát Önnu og Valsliðinu fyrir þessa óeigingjörnu ákvörðun,“ segir Hjálmar Karlsson, verkefnastjóri hjá Rauða krossinum, en Hjálmar hefur umsjón með Hjálparsíma Rauða krossins. Handboltakonan Anna Úrsúlu Guðmundsdóttir, einn af skyndihjálparmönnum ársins, gaf á dögunum andvirði iPhone 6 til Rauða krossins. „Hún sýnir ótrúlegan karakter með þessu og ekki að furða að svona flottur og vel gerður einstaklingur hafi verið valinn Skyndihjálparmaður ársins ásamt öllu Valsliðinu,“ segir Hjálmar. Á 1-1-2 daginn, þann 11. febrúar, útnefndi Rauði krossinn skyndihjálparmann ársins en fyrir valinu urðu handboltakonur úr meistaraflokki Vals, sem björguðu lífi Guðmundar Helga Magnússonar vorið 2014.Sjá einnig: Björguðu sínum dyggasta stuðningsmanni og eru skyndihjálparmenn ársinsAnna Úrsúla Guðmundsdóttir, sem var að öðrum ólöstuðum fremst meðal jafningja í björgunaraðgerðunum, hafði samband við Rauða krossinn í síðustu viku. Hún hafði fengið verðlaun frá Símanum fyrir útnefninguna, en verðlaunin hljóðuðu upp á glænýjan iPhone 6 síma. Anna ákvað að skila símanum og styrkja mannúðarstarf Rauða krossins um upphæðina sem fékkst fyrir símann en um var að ræða 117.900 krónur. „Svona peningur hefur mikla þýðingu fyrir Hjálparsíma Rauða krossins en tvisvar á ári höldum við svokallaða átaksviku þar sem við leggjum sérstaklega áherslu á ákveðinn málaflokk og kynnum þá Hjálparsímann rækilega sem úrræði fyrir fólk. Næsta átaksvika verður núna í apríl og mun hún snúa að líðan barna og unglinga á einn eða annan hátt. Þessi peningur gerir okkur kleift að vera enn sýnilegri í þjóðfélaginu þegar á átaksviku stendur og ná til fleiri einstaklinga.“ Hjálmar segist vera gríðarlega þakklátur Önnu og öllu Valsliðinu en sigurvegarinn úr þessu öllu saman sé Guðmundur Helgi Magnússon sem Valsliðið bjargaði. Hjálparsími Rauða krossins er 1717.Upphæðina er nú þegar búið að leggja inn á Rauða krossinn og rennur hún óskipt til Hjálparsímans 1717. Verður upphæðinni varið til að betrumbæta starfsemi 1717, þá sérstaklega netspjallið 1717.is, sem verður æ algengari samskiptamáti og í öllu falli jafn mikilvægur og gamla góða símalínan. Hjálmar segir að Hjálparsíminn sé gríðarlega mikið nýttur en á síðastliðnu ári bárust okkur rúmlega 14 þúsund símtöl. „Að hafa samband við Hjálparsímann er alltaf rökrétt fyrsta skref í átt að lausn á vandanum og veitum við sálrænan stuðning, sálræna skyndihjálp ásamt því að gefa upplýsingar um þau úrræði sem eru í boði í þjóðfélaginu hverju sinni. Þá tókum við nýlega í notkun netspjall á slóðinni www.1717.is sem hefur reynst afskaplega vel og vex með hverjum mánuðinum. Hjálparsíminn er algjörlega nafnlaus sími þar sem fullum trúnaði og skilningi er heitið og ókeypis er að hringja í hann úr öllum símafélögum. Allir sjálfboðaliðar Hjálparsímans hafa gengið í gegnum viðamikil námskeið og þjálfun sem sinnt er af fagaðilum.“
Tengdar fréttir Björguðu sínum dyggasta stuðningsmanni og eru skyndihjálparmenn ársins Guðmundur Helgi Magnússon hafði verið að skokka í kringum áhorfendapalla Vodafone-hallarinnar á Hlíðarenda þegar hann fékk hjartaáfall. Brugðust Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, Rebekka Rut Skúladóttir og félagar hárrétt við. 11. febrúar 2015 17:56 Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Sjá meira
Björguðu sínum dyggasta stuðningsmanni og eru skyndihjálparmenn ársins Guðmundur Helgi Magnússon hafði verið að skokka í kringum áhorfendapalla Vodafone-hallarinnar á Hlíðarenda þegar hann fékk hjartaáfall. Brugðust Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, Rebekka Rut Skúladóttir og félagar hárrétt við. 11. febrúar 2015 17:56