Yngsti flytjandinn sjö ára Jón Hákon Halldórsson skrifar 7. mars 2015 07:00 Andrea Erla Guðmarsdóttir er í Suzuki tónlistarskóla Reykjavíkur. vísir/valli
Um 80 ungir og upprennandi tónlistarmenn sýna hvað í sér býr á Skrautnótunni, uppskeruhátíð tónlistarskólanna í Reykjavík, sem haldin verður í Norðurljósasal Hörpu á sunnudaginn klukkan fjögur. Flytjendurnir koma frá 12 tónlistarskólum í Reykjavík og er sá yngsti 7 ára. Það er Andrea Erla Guðmarsdóttir sem er í Suzuki tónlistarskóla Reykjavíkur. „Ég er dálítið kvíðin,“ segir Andrea Erla í samtali við Fréttablaðið. Hún segir að þetta verði í fyrsta sinn sem hún spili í Hörpunni en hún hafi sungið með mörgum leikskólum. Hún segist æfa sig í fimmtán mínútur á dag áður en hún fer í skólann. Hún mæti svo í tíma í tónlistarskólanum einu sinni í viku og annan hvern laugardag. Guðmar Þorleifsson pabbi Andreu Erlu segir að hún hafi byrjað fjögurra ára að æfa en sé tiltölulega nýbyrjuð í suzuki náminu, sem gengur út á það að foreldrarnir æfa mikið með börnunum. Sitja með þeim á hverjum degi. „Hún er búin að vera voðalega dugleg að æfa,“ segir Guðmar og tekur fram að Andrea Erla hafi þótt mjög gaman að spila eftir að hún fór að ná tökum á því. „Hún er meira að segja farin að nota þetta fyrir utan tónlistarskólann. Hún tók þátt í Breiðholt Got Talent á vegum frístundaheimilisins. Hún stofnaði þar hljómsveit með einni sem syngur og einni sem spilar á blokkflautu og þær spiluðu saman,“ segir hann. Hún sé því farinn að nota gítarinn víðar en bara heima. „Hún hefur spilað mikið á tónleikum á vegum tónlistarskólans en þetta er í fyrsta sinn sem hún kemur fram í Hörpu. En vonandi ekki það síðasta,“ segir Guðmar. Tónlistarskólarnir bjóða landsmönnum á tónleikana til að fylgjast með framgangi hæfileikaríkra tónlistarnema. Þar fá tónleikagestir tækifæri til að hlýða á einleik og samleik á píanó, fiðlu, selló, saxófón, þverflautu og Hörpu svo eitthvað sé nefnt. Einnig syngja söngnemendur óperuaríur úr La Boheme og Tosca eftir Puccini. Stórsveit FÍH tónlistarskólans mætir á svæðið auk drengjakórs Reykjavíkur.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Sjá meira