"Getum ekki talað við gamla fólkið“ Linda Blöndal skrifar 10. febrúar 2015 19:30
Starfsfólk á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð í Reykjavík telur öryggi heimilisfólksins stefnt í hættu náist ekki að ráða hjúkrunarfræðinga á heimilið en þrír hætta stöfum um þessar mundir. Tveir hjúkrunarfræðingar verða þá eftir auk deildarstjórans og forstöðumanns. Enginn hefur sótt um störfin eftir auglýsingu. Mikill halliSeljahlíð glímir við mikinn rekstrarvanda en hallin var upp á 32 milljónir á síðasta ári. Hjúkrunarfræðingar á heimilinum vöktu athygli á stöðunni í bréfi sem sent var þann 5.desember í fyrra meðal annars til Eftirlits-og gæðasviðs Landlæknis, Velferðarsviðs borgarinnar og borgarstjóra. Engin viðbrögð hafa borist við því. Hjúkrunarfræðingarnir munu hittast á morgun á fundi til að ræða þá grafalvarlegu stöðu sem nú er orðin, eins einn þeirra kaus að orða það. Sinna báðum deildum Reykjavíkurborg rekur Seljahlíð, hjúkrunardeild fyrir tuttugu aldraða heimilismenn og svo þjónustudeild fyrir rúmlega fimmtíu í viðbót, alls rúmlega sjötíu heimilismenn. Deildirnar tvær eru ekki aðskildar í húsinu og sinna starfsmenn hjúkrunardeildar sjálfkrafa líka þeim sem eru á þjónustudeildinni. Þar er gert ráð fyrir yngri og frískari heimilismönnum en sú er ekki raunin. Á heimilinu starfar einnig sjúkraþjálfi og tuttugu ófaglærðir starfsmenn. Sjúkraliðar hætta Barbara Helgason, trúnaðarmaður starfsmanna í Eflingu, hefur starfað í Seljahlíð í fimm ár og segir starfsfólkið allt af vilja gert en vinnuálagið allt of mikið. „Það er mikil vinna, við vinnum stundum fjórtán til sextán tíma á dag,“ sagði Barbara í fréttum Stövðar tvö í kvöld. „Tveir hafa hætt og farið að vinna annars staðar og það kemur enginn nýr í staðinn,“ sagði hún. Getum baðað þau einu sinni í viku Oft vanti þá starfsfólk á vaktir vegna veikinda og í dag hafi til dæmis vantað tvo á vaktina, segir Barbara. „Ég er búin að tala við Eflingu og borgina og hef hringt í borgarstjóra og Landlækni en þeir svara okkur ekki. Þeir gera ekki neitt,“ segir Barbara. Heimilisfólk er oft afskiptalaust vegna manneklu, segir hún en tíu ófaglærðir starfsmenn eru á dagvaktinni fyrir allt húsið að hennar sögn. Erfitt sé að hugsa vel um gamla fólkið með svo fátt starfsfólk. „Við getum það ekki. Við verðum að sleppa baði, getum baðað þau einu sinni í viku. Það er mjög mikið af róandi lyfjum. Þetta fólk getur ekki lifað svona. Gamla fólkið er líka svo óskaplega spennt. Við getum ekki talað við það, menn bara flýta sér,“ segir Barbara og bætir við: „Ég myndi ekki vilja fara á svona heimili.“
Tengdar fréttir Sat allan daginn fyrir framan sjónvarp með stillimynd Formaður Landsambands eldri borgara segir að víða sé pottur brotinn í málefnum aldraðra hér á landi. 9. febrúar 2015 07:42 Aldraðir með heilabilun: Bundnir í stóla og gefið róandi vegna manneklu Svava Bjarnadóttir sjúkraliði segir aðbúnað og umönnun aldraðra með heilabilun mun verri á Íslandi en í Danmörku. 10. febrúar 2015 07:00 Umönnun aldraðra: „Komið betur fram við hunda en okkur.“ Aðstandendur segja að umönnun eldra fólks á hjúkrunarheimilum sé fyrir neðan allar hellur. Mannekla og fjárskortur kemur niður á samskiptum við vistmenn. Margir upplifa sig afskipta. Rætt er við fagaðila um úrlausn mála. 7. febrúar 2015 10:00 Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Sjá meira
Sat allan daginn fyrir framan sjónvarp með stillimynd Formaður Landsambands eldri borgara segir að víða sé pottur brotinn í málefnum aldraðra hér á landi. 9. febrúar 2015 07:42
Aldraðir með heilabilun: Bundnir í stóla og gefið róandi vegna manneklu Svava Bjarnadóttir sjúkraliði segir aðbúnað og umönnun aldraðra með heilabilun mun verri á Íslandi en í Danmörku. 10. febrúar 2015 07:00
Umönnun aldraðra: „Komið betur fram við hunda en okkur.“ Aðstandendur segja að umönnun eldra fólks á hjúkrunarheimilum sé fyrir neðan allar hellur. Mannekla og fjárskortur kemur niður á samskiptum við vistmenn. Margir upplifa sig afskipta. Rætt er við fagaðila um úrlausn mála. 7. febrúar 2015 10:00