Stuðningur við sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga Heimir Már Pétursson skrifar 10. febrúar 2015 19:24
Skrifað var undir samninga í dag um sóknaráætlun fyrir landshlutana með það að markmiði að styrkja menningar- og nýsköpunarstarf á landsbyggðinni. Talskona landshlutasamtakanna segir að með þessu samstarfi færist verkefni frá ríki til sveitarfélaga en vissulega mætti setja meiri fjármuni í verkefnið. Allir fulltrúar landshlutanna sem komu saman í Ráðherrabústaðnum í dag ásamt atvinnuvegaráðherra og menntamálaráðherra, eru sammála um að fyrri sóknaráætlanir landshlutanna, sem gerðar voru til skemmri tíma, hafi skilað miklum árangri. Miklar vonir eru því bundnar við þá samninga sem undirritaðir voru í dag. Fulltrúar sex landshlutasamtaka undirrituðu samkomulag um sóknaráætlun en fulltrúar Norðurlands Eystra og Austurlands áttu ekki heimangengt vegna veðurs. Ríkissjóður leggur verkefninu til 101 milljón en að auki færast framlög úr öðrum eldri áætlunum fyrir landsbyggðina inn í verkefnin. Þau byggja á áætlanagerð um menningarstarfsemi og nýsköpun að frumkvæði heimamanna í samstarfi við öll ráðuneyti. Friðbjörg Matthíasdóttir, formaður Fjórðungssambands Vestfjarða, hafði orð fyrir landshlutunum við undirritun sóknaráætlananna í dag.Heldur þú að þetta muni auka fjölbreytni á landsbyggðinni og fjölga atvinnutækifærum? „Það er í raun og veru sett í okkar hendur að vinna úr þeim tækifærum sem við fáum,“ segir Friðbjörg. Landshlutarnir séu vel undirbúnir af fyrri átlunum til að virkja þennan samstarfsvettvang. Heildarframlög til landshlutanna verða um 600 miljónir króna á þessu ári. „Ég verð að segja eins og er að það er mikilvægt ákvæði í samningnum sem leggur skyldur á herðar beggja aðila að vinna að því á samningstímabilinu að auka fjármunina,“ segir Friðbjörg. „Ég er mjög ánægður hvað menninguna varðar. Ég held að þetta sé mjög spennandi tilraun. En aðalatriðið er þetta að virkja sem best heimamenn þannig að þeir taki ákvarðanir,“ segir Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra. Atvinnuvegaráðherra gerir sér vonir um að sóknaráætlanirnar fjölgi atvinnutækifærum á landsbyggðinni. En það var nefnt við undirritunina í dag að gjarnan mætti tengja fleiri áætlanir stjórnvalda beint við landshlutasamtökin og færa þannig ákvaðanatökuna í fleiri málum til sveitarfélaganna. „Klárlega eru sóknaráætlannirnar sem verða unnar einn liður í því sem við erum að fara að gera í hverjum landshluta. Byggðaáætlunin hlýtur að byggja á því, síðan samgönguáætlun, fjarskiptaáætlun, menntaáætlun, áætlun í heilbrigðismálum og svo framvegis. Þær eiga síðan að leggjast hver ofan á aðra og kannski ekki hvað síst landsskipulagsstefnan sem er að koma fram í fyrsta skipti á vorþinginu,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson atvinnuvegaráðherra.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Innlent Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Fleiri fréttir Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Sjá meira