Innlent

Frítt í sund í Hafnarfirði

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hafnfirðingar geta nú farið í sund eins og enginn sé morgundagurinn. Hér má sjá Ásvallalaug.
Hafnfirðingar geta nú farið í sund eins og enginn sé morgundagurinn. Hér má sjá Ásvallalaug. vísir/anton
Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í morgun að dagana 25.febrúar - 1. mars, þegar skipulagsdagur og vetrarfrí eru i leik- og grunnskólum Hafnarfjarðar, verði öllum veittur ókeypis aðgangur í sundlaugar bæjarins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnafjarðarbæ. Í Hafnarfirði eru 3 almennings sundlaugar, sú elsta frá 1943, Sundhöllin við Herjólfsgötu en yngst er Ásvallalaugin sem var vígð 2008.

Sundkennsla hófst hins vegar í Hafnarfirði 1909 og var í fyrstu kennt í sjónum út af Hamarskotsmöl en kennslan fluttist síðan vestur á Malir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×