Í öryggisgæslu vegna hnífstunguárásar Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 12. febrúar 2015 17:09 Maðurinn var ákærður fyrir að hafa aðfaranótt 15. nóvember 2013 á heimili sínu veist að öðrum manni með hnífum þar sem hann svaf á sófa í stofu, og skorið hann á háls og stungið hann í brjóstkassann vísir/gva
Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag dóm yfir manni sem í Héraðsdómi Reykjavíkur í fyrra var sýknaður af ákæru um tilraun til manndráps og þess í stað gert að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun. Var hann sagður alls ófær um að stjórna gerðum sínum á verknaðarstundu. Maðurinn áfrýjaði dómi héraðsdóms og krafðist þess að sér yrði ekki gert að sæta öryggisgæslu og óskaði eftir vægari úrræðum. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa aðfaranótt 15. nóvember 2013 á heimili sínu veist að öðrum manni með hnífum þar sem hann svaf á sófa í stofu, og skorið hann á háls og stungið hann í brjóstkassann. Sá hlaut um það bil átta sentímetra langan skurð á hálsi vinstra megin og um það bil tveggja sentímetra langt og 1,5 sentímetra djúpt stungusár vinstra megin á brjóstkassa. Málavextir eru þeir að umrædda nótt var komið með mann á slysadeild og var hann þá með umrædda áverka. Lögregla var kölluð til og skýrði maðurinn frá því að ákærði hefði boðið sér á heimili sitt. Þar hefði hann gefið sér áfengi í glas og sett ofan í það muldar töflur. Í kjölfarið kvaðst hann hafa lognast út af en vaknað við að ákærði var að stinga sig. Ákærði játaði brot sitt og kvaðst hafa heyrt raddir sem sögðu honum að gera það. Hann var í kjölfarið vistaður á geðdeild að fyrirmælum læknis og sviptur sjálfræði í tólf mánuði frá 5. desember 2013 samkvæmt úrskurði er kveðinn var upp þann sama dag.
Mest lesið Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Það er jóker í spilinu Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Innlent Fleiri fréttir Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Sjá meira