„Ég er að fara á götuna“ Birgir Olgeirsson. skrifar 19. febrúar 2015 11:02 Marta Dröfn Björnsdóttir ásamt syni sínum. „
Ég er að fara á götuna,“ segir Marta Dröfn Björnsdóttir, einstæð móðir, sem horfir fram á að verða heimilislaus um mánaðarmótin. Fyrir fimm vikum fékk Marta Dröfn uppsögn á leigusamningi og leitaði í kjölfarið til Reykjavíkurborgar eftir félagslegu húsnæði. Hún fékk þau svör að ekki yrði hægt að hjálpa henni fyrir mánaðarmót enda mikil aðsókn í húsnæðisúrræði Reykjavíkurborgar. 827 voru á biðlista eftir félagsíbúðum hjá Reykajvíkurborg 1. janúar síðastliðinn. Marta segist hafa fyrst sett sig í samband við Reykjavíkurborg í júlí síðastliðnum og óskaði þá eftir félagslegu húsnæði. Í millitíðinni fékk hún húsnæði á almennum leigumarkaði en er að missa þá íbúð um mánaðarmótin og hefur því leitað úrræða hjá Reykjavíkurborg. Svörin frá borginni eru hins vegar á þá lund að ekkert sé laust og hefur Mörtu verið bent á að hún geti leitað á gistiheimili fram til mánaðarmóta, sem er hægara sagt en gert að hennar sögn enda erfitt að fá inn rétt fyrir mánaðarmót. „Það er bara dótið í geymslu og gistiheimili.“ Líkt og fram kom áður er biðlistinn eftir félagsíbúð hjá Reykjavíkurborg ansi langur en Elfa Björk Ellertsdóttir, upplýsingafulltrúi velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, segir Reykjavíkurborg benda einstaklingum í húsnæðisvanda á þær leiðir sem fyrir hendi eru í samfélaginu, frjálsan markað, leigufélög og sem tímabundið úrræði í neyð, gistiheimili.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Sjá meira