„Börn finna alltaf göt“ Atli Ísleifsson skrifar 2. febrúar 2015 14:14 Helga Þórey Júlíudóttir, móðir hins tveggja og hálfs árs gamla Róberts Ómars Þorsteinssonar, segir það kraftaverk að barnið hafi lifað fallið af. Vísir/Innsent/Andri Marinó/Stefán „
Börn finna alltaf göt. Ef það eru göt eða bil þá munu börn finna þau,“ segir Herdís Storgaard, verkefnastjóri hjá Miðstöð slysavarna barna, um slysið sem varð í Smáranum um helgina þar sem tveggja ára drengur féll rúma þrjá metra niður úr áhorfendastúku. Herdís segir ljóst að í þessu tilfelli hafi ekki verið farið eftir settum reglum. „Síðastliðin ár hef ég verið að fá tilkynningar um sambærileg slys þar sem umhverfið eða húsnæðið á í hlut. Bæði er um að ræða gesti á leikjum eða þeir sem eru að iðka íþróttir sem eru að slasa sig. Þá hefur komið í ljós að umhverfið er ekki í lagi. Settum reglum hefur þá ekki verið framfylgt,“ segir Herdís.Árið 2002 voru settar reglur sem var ætlað að auka öryggi í íþróttahúsum. „Það er ekki bara íþróttaiðkunin sem slík, heldur getur umhverfið oft haft mjög sterk áhrif á það. Eins og í þessu tilfelli þá er ljóst að ekki hefur verið farið eftir þeim leiðbeiningum sem þar eru. Svona lagað á ekki að geta gerst,“ segir Herdís.Eru öryggismálin frekar sniðin að fullorðnum? „Auðvitað er það þannig að í þessu tilviki færu fullorðnir ekki að detta þarna niður. Nema þá ef þeir stigu þarna niður og gætu þá stórslasað sig, þó þeir húrri ekki alla leiðina niður.“ Herdís beinir þeim orðum til íþróttafélaganna að kynna sér þessar reglur sem gefnar voru út. „Þær voru gefnar út til að auka öryggi bæði þeirra sem koma á staðinn til að iðka íþróttir og þeirra sem koma til að fylgjast með.“ Helga Þórey Júlíudóttir, móðir hins tveggja og hálfs árs gamla Róberts Ómars Þorsteinssonar, sagði í samtali við Vísi í gær að Róbert Ómar hafi fallið 3,2 metra milli áhorfendapalla í Smáranum á Póst-móti Breiðabliks í körfubolta á laugardaginn. Betur fór en á horfðist og Róbert gekk sjálfur undan stúkunni ómeiddur. „Það er kraftaverk að barnið sé óhult,“ sagði Helga Þórey.
Tengdar fréttir Slapp ómeiddur eftir þriggja metra fall: „Það er kraftaverk að barnið sé óhult“ Móðir drengsins segir ótrúlegt að sonur hennar hafi sloppið ómeiddur eftir þriggja metra fall milli áhorfendapalla í Smáranum í gær. 1. febrúar 2015 21:01 Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Sjá meira
Slapp ómeiddur eftir þriggja metra fall: „Það er kraftaverk að barnið sé óhult“ Móðir drengsins segir ótrúlegt að sonur hennar hafi sloppið ómeiddur eftir þriggja metra fall milli áhorfendapalla í Smáranum í gær. 1. febrúar 2015 21:01