RÚV braut lög með sýningu GoldenEye Aðalsteinn Kjartansson skrifar 4. febrúar 2015 18:01 RÚV mátti ekki sýna Bond-myndina fyrr en eftir klukkan tíu. Vísir/GVA
Ríkisútvarpið braut lög þegar það sýndi James Bond-mynd klukkan fimm mínútur í níu að kvöldi 9. janúar síðastliðins. Lög heimila ekki sýningu myndarinnar fyrir klukkan 22.00. Fjölmiðlanefnd fjallaði um málið og komst að þessari niðurstöðu. RÚV gekkst við brotinu og harmaði að það hafi átt sér stað. Myndin sem um ræðir heitir GoldenEye og skartar Pierce Brosnan í hlutverki njósnara hennar hátignar. Kvikmyndin var auðkennd með gulu merki sem þýðir að hún er ekki talin við hæfi barna yngri en tólf ára. Slíkar myndir má, samkvæmt lögum, ekki spila í sjónvarpi fyrr en eftir tíu. Í svari Ríkisútvarpsins við erindi frá Fjölmiðlanefndinni var sagt að ástæðuna mætti rekja til þess að umrætt kvöld hafi verið bein útsending frá landsleik í handbolta karla sem hafi varað nokkru skemur en gert hafi verið ráð fyrir í dagskrársetningu. Þá hafi einnig verið tekin ákvörðun með skömmum fyrirvara að hætta við að senda út Útsvar á milli landsleiksins og myndarinnar. GoldenEye fór því í loftið um klukkutíma fyrr en upprunalega hafði verið gert ráð fyrir. Í bréfinu kom einnig fram að dagskrárdeild sjónvarpsins harmi þessi mistök. Þrátt fyrir að heimild sé í lögum til að leggja á stjórnvaldssekt vegna brota af þessum toga ákvað Fjölmiðlanefndin að gera það ekki þar sem um fyrsta brot RÚV hafi verið að ræða.
Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Sjá meira