Segist ekki ætla að biðjast afsökunar á ummælum Valgerðar Birgir Olgeirsson skrifar 28. janúar 2015 21:25 Vilhjálmur Hans Vilhjálms sendi kröfubréf fyrir hönd umbjóðanda síns á Akureyri Vikublað vegna fréttaflutnings af Grímseyjarmálinu svokallaða.
Björn Þorláksson, ritstjóri Akureyri Vikublaðs, hefur brugðist við kröfubréfi sem lögmaðurinn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson sendi blaðinu fyrir hönd umbjóðanda síns vegna fréttflutnings af Grímseyjarmálinu svokallaða. Vilhjálmur gerði fyrir hönd umbjóðanda síns þá kröfu að blaðið bregðist við þrennum tilvitnuðum ummælum sem birst hafa, leiðrétti þau og biðjist velvirðingar á. Fyrstu ummælin sem gerð var athugasemd við voru: „Það sem gæti riðið baggamuninn nú hvað varðar framtíð sjávarútvegs er að upp kom kynferðisbrot þar sem gerandi tengist útgerð í eynni. Heimamenn segja að sá maður eigi ekki afturkvæmt til Grímseyjar. Ef heimamenn eða þeir sem vilja áfram útgerð í Grímsey hafa ekki burði til að kaupa kvóta brotamannsins og halda í eynni gæti það haft mikil áhrif.“ Vilhjálmur krafðist þess að orðalaginu yrði breytt enda hafi verið of fast að orði kveðið. „ Í ljósi þess að afdrif málsins eru enn ekki ljós fellst blaðið á að það hefði verið nákvæmara orðalag að skrifa um „meint kynferðisbrot“ og „meintan brotamann“,“ skrifar Björn Þorláksson í svari sínu við þessum athugasemdum lögmannsins. Síðari dæmin segir Björn eru ummæli sem höfð voru eftir viðmælanda Akureyri Vikublaðs 22. janúar þar sem rætt var við Valgerði Þorsteinsdóttur. Gerði Vilhjálmur athugasemd við að þá orðanotkun að búast megi við að málið verði dómtekið innan tíðar. „Blaðið fellst á að réttar hefði verið að segja að „búist væri við að málið fái dómsmeðferð innan tíðar“,“ skrifar Björn. Þá segir Björn að Vilhjálmur hefði gert athugasemd við orðalag sem blaðið hafði eftir Valgerði: „Þá gerir lögmaðurinn athugasemd við að blaðið hafi haft eftir Valgerði að um nauðgun sé að ræða, enda lúti sakarefnið ekki að þeirri grein hegningarlaganna sem varði nauðgunarbrot. Lögmaðurinn krefst þess að blaðið gefi út að rangt hafi verið að nota orðið nauðgun í textanum,“ skrifar Björn sem segir blaðið ekki geta orðið við þeirri kröfu. „Blaðið getur hvorki tekið aftur né beðist afsökunar á að Valgerður Þorsteinsdóttir hafi sjálf lýst sinni reynslu svo sem að um nauðgun hafi verið að ræða, burtséð frá rannsókn málsins á þessu stigi eða framhaldi málsins hjá Ríkissaksóknara. Blaðið vitnar til hennar orðalags. Það felur ekki í sér neinn gildisdóm af hálfu blaðsins. Hvað fyrri atriðin tvö varðar biður Akureyri Vikublað lesendur og hlutaðeigandi velvirðingar á orðalagi sem fallist er á að megi telja ónákvæmt á þessu stigi málsins. Blaðið mun eftir sem áður leitast við að fjalla af sanngirni og yfirvegun um málið,“ skrifar Björn. Lesa svar Björns hér.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Fleiri fréttir Vinnuvél var keyrt upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira