Áætlað að Árni fái 5,6 milljónir vegna innleiðingar rafrænna skilríkja Birgir Olgeirsson skrifar 13. janúar 2015 16:00 Árni Sigfússon, stjórnsýslufræðingur og fyrrverandi bæjarstjóri Reykjanesbæjar, var valinn verkefnastjóri vegna innleiðingar rafrænna skilríkja til að fylgja eftir sameiginlegri yfirlýsingu fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Samtaka fjármálafyrirtækja um að stuðla að útbreiðslu og notkun rafrænna skilríkja Vísir/Gunnar
Áætlað kostnaður vegna verktöku Árna Sigfússonar, stjórnsýslufræðings og fyrrverandi bæjarstjóra Reykjanesbæjar, við innleiðingu rafrænna skilríkja er 5,6 milljónir króna. Þetta kemur fram í svari Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðgjafa, við fyrirspurn Svandísar Svavarsdóttur, þingmanns Vinstri grænna. Síðastliðið haust var skipuð verkefnisstjórn um innleiðingu rafrænna skilríkja til að fylgja eftir sameiginlegri yfirlýsingu fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Samtaka fjármálafyrirtækja um að stuðla að útbreiðslu og notkun rafrænna skilríkja en í þessa stjórn völdust fulltrúar úr fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Samtökum fjármálafyrirtækja og ríkisskattstjóra. Samkvæmt svari Bjarna er kostnaðurinn sem fellur til vegna verkefnisstjórnarinnar greiddur sameiginlega af ríkin og Samtökum fjármálafyrirtækja og tók hann fram að verkefnisstjórnin tengist ekki aðgerð stjórnvalda til að lækka höfuðstól verðtryggðra fasteignaveðlána.Svandís spurði Bjarna um kostnað vegna innleiðingar rafrænna skilríkjaVísir/Gunnar/VilhelmFéll ekki undir auglýsingaskyldu Svandís spurði hvernig staðið var að vali Árna sem verkefnisstjóra vegna rafrænna skilríkja. „Á hvaða forsendum fór valið fram, hver var reynsla þess er starfið hreppti af því að stýra sambærilegum verkefnum og hvernig var hún metin? Var starfið auglýst, hve miklar eru heildargreiðslur vegna starfsins að meðtöldum kostnaði vegna aksturs, síma, tölvu og annars er starfinu tengist,“ spurði Svandís. Í svari Bjarna kemur fram að verkefnisstjórnin mat Árna hæfan til að sinna starfi verkefnisstjóra. Þá segir Bjarni umrætt verkefni hafa verið unnið í verktöku og telst því ekki starf í skilningi laga um réttindi starfsmanna ríkisins, og fellur því ekki undir auglýsingaskyldu, að því er fram kemur í svari Bjarna sem segir áætlaðan heildarkostnað vegna Árna 5,6 milljónir króna. Þá spurði Svandis hver rökin séu fyrir því að allir verði að notast við tilteknar gerðir rafrænna skilríkja til að eiga kost á svokallaðri skuldaleiðréttingu, það er niðurfærslu á veðskuldum vegna fasteignalána, þegar fyrir liggur að einstaklingum sé heimilt að nota margvísleg önnur skilríki til að sanna á sér deili, svo sem ökuskírteini, íslykla, vegabréf og greiðslukort. Í svari Bjarna kemur fram að ákveðið var að hafa allt ferlið vegna aðgerðinnar rafrænt. Það hafi verið ákveðið með hliðsjón af fjölda umsækjenda og í tak við nútímastjórnsýslu. Samkvæmt reglugerð um samræmt verklag og viðmið við leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána þurfa umsækjendur að samþykkja niðurstöðu útreiknings á höfuðstólslækkun íbúðalána með rafrænni undirritun. „Rafræn skilríki eru einu skilríkin sem gefa möguleika fullgildrar rafrænnar undirritunar,“ segir í svari Bjarna.vísir/hörðurRúmar 190 milljónir frá 2007 Svandis spurði hvað þessi allsherjarinnleiðing rafrænna skilríkja kostar en Bjarni segir þessa innleiðingu hafa staðið yfir frá árinu 2008 en undirbúningurinn hófst nokkuð fyrr. „Frá árinu 2008 hafa rafræn skilríki verið gefin út til einstaklinga í samstarfi ríkis og einkaaðila. Heildarkostnaður verkefnisins liggur hjá mörgum aðilum, einkum fjármálafyrirtækjum, en fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ekki borið kostnað af útgáfu rafrænna skilríkja til einstaklinga,“ segir Bjarni en kostnaður ríkissjóðs, sem hefur fallið til í ráðuneytinu vegna verkefnisins, nemur 191,5 milljónum króna frá árinu 2007. Samkvæmt Bjarna hefur árlegur kostnaður verið að meðaltali 23 milljónir króna, nema árið 2007 þegar hann var 50,8 milljónir króna og árið 2008 þegar kostnaðurinn var 38,4 milljónir króna. Segir Bjarni að stærsti hluti þessarar upphæðar sé vegna árlegs framlags vegna samstarfssamnings við Auðkenni hf. um almenna notkun rafrænna skilríkja. „Framlag ríkissjóðs til samstarfsverkefnisins er 10 millj. kr. á ári sem tekur breytingum í samræmi við vísitölu neysluverðs. Greiðslan er fyrir hýsingu og rekstur Íslandsrótar, milliskilríkja og notendaleyfa persónutengdra endaskilríkja, auk framleiðslu og aðgengis að afturköllunarlistum (CRL) og svokallaðri OCSP-þjónustu. Frá árinu 2008 hafa greiðslur vegna þessa numið alls 107,4 millj. kr., auk 30 millj. kr. stofnframlags árið 2007. Annar kostnaður er vegna hugbúnaðargerðar og sérfræðiþjónustu. Í framantöldum kostnaði er tekið tillit til 35,6 millj. kr. framlags vegna STORK-verkefnisins sem hefur það að markmiði að gera Evrópu að einu rafrænu innskráningar- og auðkenningarsvæði,“ segir í svari Bjarna. Þá var kostnaðurinn við kynningu og auglýsingar vegna rafrænna skilríkja í tengslum við svokallaða skuldaleiðréttingu 560 þúsund krónur en að auki hefur verið vakin athygli á rafrænum skilríkjum í almennum auglýsingum um höfuðstólslækkun verðtryggðra fasteignaveðlána. Þá spurði Svandís hvort þessi auglýsinga- og kynningarstarfsemi hefði verið boðin út og hvaða aðili hefði annast auglýsinga- og kynningarstarfsemina. Þá vildi hún einnig vita hvað réði vali á viðkomandi en í svari Bjarna kemur fram að starfsemin var ekki boðin út heldur hefði embætti ríkisskattstjóra annast þau mál sem framkvæmdaraðili höfuðstólslækkunar verðtryggðra íbúðalána.
Mest lesið Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Erlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Innlent Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent Barist á hafi úti Erlent „Það er bara frekar slæmt ástand“ Innlent Fleiri fréttir Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra Sjá meira