Tjá sig ekki um vanrækslu á hrossunum við Akrafjall Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 14. janúar 2015 10:51 Vanrækslan var slík að hrossin áttu erfitt með gang. vísir/sigurjón guðmundsson
Ekki fást upplýsingar um hvort mál er varðar vanhirðu á hrossum við Akrafjall sé í skoðun hjá Matvælastofnun. Fræðslustjóri hjá MAST segir að um sé að ræða einkamál og að megi ekki veita upplýsingar um einstök dýravelferðarmál. Vísir greindi frá því á dögunum að hófar nokkurra hrossa austan við Akrafjall væru óklipptir og afar illa farnir. Vanrækslan var slík að hrossin áttu erfitt með gang. Það var áhugaljósmyndarinn Sigurjón Guðmundsson sem vakti athygli á málinu, en hann var í göngu með eiginkonu sinni þegar hann sá hrossin. Hann tilkynnti málið samstundis til Matvælastofnunar.Hófar eins hestsins.vísir/sigurjón guðmundssonHótað af eigendum hrossanna „Ég fékk skilaboð frá þeim [MAST] að ég ætti að hafa aftur samband eftir mánuð ef ekkert breyttist. Svörin voru eiginlega á þá leið að það væri mitt að fylgjast með hvort hugsað yrði um hrossin,“ segir Sigurjón í samtali við Vísi. „Ég er nú búinn að líta þarna við og sá að hestarnir eru farnir inn í hús. Þannig að ég veit ekki hver staðan er í dag,“ bætir hann við. Fræðslustjóri hjá MAST staðfesti að mál er tengist vanhirðu hrossa sé á þeirra borði, en hvort um þetta tiltekna mál sé að ræða vildi hann ekki staðfesta. Þá segir Sigurjón eigendur hestanna hafa brugðist harkalega við fréttaflutningi um málið. „Eigendurnir hringdu snarvitlausir í mig og ætluðu að kæra mig fyrir að hafa farið inn á einkalóð. Það gerði ég nú samt ekki. Ég er með það góða myndavél að ég þurfti ekki að fara inn á lóðina til að ná þessum ljósmyndum,“ segir hann.Þennan hest þurfti að aflífa á síðasta ári vegna vanhirðu.MYND/HEIMIR ÞÓR ÍVARSSONÍ reglugerð um velferð hrossa segir að umráðamanni sé skylt að fylgjast með heilbrigði hrossa í hans umsjá og kalla til dýralækni ef þarf. Hann skuli tryggja að hross líði ekki fyrir vanhirðu, meðal annars með því að verja þau ytri óværu og hirða hófa.Í mars á síðasta ári var greint frá sambærilegu máli. Um var að ræða tvö hross á Mýrum í Borgarfirði og voru hófar þeirra afskaplega illa farnir. Svo illa farnir að aflífa þurfti hrossin.Uppfært: Svarið sem Sigurjón fékk frá Matvælastofnun í kjölfar tilkynningarinnar var sjálfvirkt svar frá MAST en þar segir að ef fólk er ekki sátt við úrlausnina sé það hvatt til að hafa samband aftur innan mánaðar.
Tengdar fréttir Illa farin hross í Borgarfirði Lögfræðingur telur meðferð dýranna brot á dýravelferðarlögum. 13. mars 2014 22:54 „Þetta er til háborinnar skammar“ Sigurjón Guðmundsson telur hófa illa farna á að minnsta kosti fjórum hestum sem standa úti austan Akrafjalls. Svo virðist sem hófarnir hafi ekki verið klipptir í lengri tíma. 6. janúar 2015 16:55 Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira
Illa farin hross í Borgarfirði Lögfræðingur telur meðferð dýranna brot á dýravelferðarlögum. 13. mars 2014 22:54
„Þetta er til háborinnar skammar“ Sigurjón Guðmundsson telur hófa illa farna á að minnsta kosti fjórum hestum sem standa úti austan Akrafjalls. Svo virðist sem hófarnir hafi ekki verið klipptir í lengri tíma. 6. janúar 2015 16:55