Innlent

Bíl og listaverkum stolið af bláfátækum listamanni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Rúna með listaverk sín.
Rúna með listaverk sín.
Listakonan Rúna K. Tetzschner varð fyrir því að bíl hennar var stolið ásamt 46 listaverkum aðfaranótt 31. desember. Bíllinn er kominn í leitirnar en listaverkin ekki.

Bíllinn var tekinn ófrjálsri hendi við Baldursgötu 24 í Reykjavík en fannst á bílastæði við Strandasel 1 þann 2. janúar. Bíllinn virðist í lagi en hins vegar var öllu í bílnum stolið. Þar á meðal tveimur gömlum ferðatöskum með listaverkum eftir Rúnu.

Listaverkin 46 sem stolið var.
„Ég er sjálf listamaðurinn, bláfátæk, en tjónið er líka óbætanlegt fyrir mig þar eð um eigin sköpunarverk er að ræða. Ég held enn í vonina um að myndirnar finnist,“ segir Rúna í erindi til Vísis.

Um er að ræða myndir sem unnar eru með vatnstússlitum á pappír og glitrandi duftlitir bræddir á pappírinn með hitatæki.

Rúna segist sjálf hafa þróað þessa tækni og viti ekki til þess að nokkur annar noti hana. Flestar myndirnar eru innrammaðar í silfurgyllta og hvíta ramma í stærðunum 28x23, 20x20 og 44x54. Hún segir antíkferðatöskurnar hafa tilfinningalegt gildi fyrir sig en vera verðlausar fyrir þjófana.

Rúna í kraftgalla sem var meðal þess sem stolið var.
Töskurnar frá afa og heitnum eiginmanni

„Aðra erfði ég frá afa mínum sem hafði aleiguna í henni þegar hann flutti sem ungur maður frá Jótlandi til Sjálands,“ segir Rúna.

„Hina erfði ég frá manninum mínum heitnum, Þorgeiri Rúnari Kjartanssyni, tónlistarmanni og rithöfundi, sem geymdi í henni ljóð sín og skrif. Sjálf hef ég geymt myndirnar mínar í töskunum og þær hafa fylgt mér á ferðalögum síðustu 16 árin.“

Rúna segist taka öllum ábendingum fegins hendi, annaðhvort til sín í síma 691-3214 eða til lögreglu. Myndirnar séu merktar henni og hafi líka sérstæða glitrandi áferð sem geri þær auðþekkjanlegar.

Myndirnar má sjá á heimasíðu Rúnu á Facebook.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×