Bíl og listaverkum stolið af bláfátækum listamanni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. janúar 2015 13:28 Rúna með listaverk sín.
Listakonan Rúna K. Tetzschner varð fyrir því að bíl hennar var stolið ásamt 46 listaverkum aðfaranótt 31. desember. Bíllinn er kominn í leitirnar en listaverkin ekki. Bíllinn var tekinn ófrjálsri hendi við Baldursgötu 24 í Reykjavík en fannst á bílastæði við Strandasel 1 þann 2. janúar. Bíllinn virðist í lagi en hins vegar var öllu í bílnum stolið. Þar á meðal tveimur gömlum ferðatöskum með listaverkum eftir Rúnu.Listaverkin 46 sem stolið var.„Ég er sjálf listamaðurinn, bláfátæk, en tjónið er líka óbætanlegt fyrir mig þar eð um eigin sköpunarverk er að ræða. Ég held enn í vonina um að myndirnar finnist,“ segir Rúna í erindi til Vísis. Um er að ræða myndir sem unnar eru með vatnstússlitum á pappír og glitrandi duftlitir bræddir á pappírinn með hitatæki. Rúna segist sjálf hafa þróað þessa tækni og viti ekki til þess að nokkur annar noti hana. Flestar myndirnar eru innrammaðar í silfurgyllta og hvíta ramma í stærðunum 28x23, 20x20 og 44x54. Hún segir antíkferðatöskurnar hafa tilfinningalegt gildi fyrir sig en vera verðlausar fyrir þjófana.Rúna í kraftgalla sem var meðal þess sem stolið var.Töskurnar frá afa og heitnum eiginmanni „Aðra erfði ég frá afa mínum sem hafði aleiguna í henni þegar hann flutti sem ungur maður frá Jótlandi til Sjálands,“ segir Rúna. „Hina erfði ég frá manninum mínum heitnum, Þorgeiri Rúnari Kjartanssyni, tónlistarmanni og rithöfundi, sem geymdi í henni ljóð sín og skrif. Sjálf hef ég geymt myndirnar mínar í töskunum og þær hafa fylgt mér á ferðalögum síðustu 16 árin.“ Rúna segist taka öllum ábendingum fegins hendi, annaðhvort til sín í síma 691-3214 eða til lögreglu. Myndirnar séu merktar henni og hafi líka sérstæða glitrandi áferð sem geri þær auðþekkjanlegar. Myndirnar má sjá á heimasíðu Rúnu á Facebook.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira