Öryrkjar krafðir um milljóna endurgreiðslur af TR Ingvar Haraldsson skrifar 27. júlí 2015 07:00 Sólveig segir erfitt að hjálpa þeim lífeyrisþegum sem fái háar eingreiðslur í árslok. vísir/pjetur
Hluti öryrkja skuldar Tryggingastofnun yfir milljón króna eftir endurútreikninga á greiðslum frá stofnuninni vegna tekjutengdra greiðslna árið 2014. Sólveig Hjaltadóttir, framkvæmdastjóri samskiptasviðs Tryggingastofnunar, segir að slíkum tilfellum hafi fjölgað eftir að lögum var breytt sem höfðu í för með sér að lífeyrisþegum var gert að sækja rétt sinn hjá lífeyrissjóðum. Þeir einstaklingar sem ekki hafi sótt um lífeyri áður hjá lífeyrissjóðum eigi uppsafnaðan rétt sem geti numið nokkrum milljónum króna. Upphæðin sé greidd í eingreiðslu og valdi skerðingu á þeim greiðslum sem fólk eigi rétt á hjá Tryggingastofnun. „Það er stundum verið að gera þetta fyrir áramótin hjá lífeyrissjóðum og það er mjög slæmt fyrir þá sem hafa verið að fá greiðslur hjá okkur,“ segir hún. Sólveig segir erfitt að hjálpa þeim lífeyrisþegum sem fái slíkar eingreiðslur í árslok. „Eingreiðslurnar eru kannski að koma í nóvember, desember og þá erum við ekki í þessu mánaðarlega eftirliti því þá er árið að verða búið. Þetta er að valda óþægindum hjá fólki, því að svo reiknast þessar tekjur fyrir allt tekjuárið og valda því að það myndast krafa vegna ársins 2014,“ segir hún.Sólveig segir erfitt fyrir stofnunina að hjálpa þeim sem fái eingreiðslur frá lífeyrissjóðum í árslok og hafi fram til þess tíma fengið greiðslur frá Tryggingastofnun.Þriðjungur örorkulífeyrisþega og sautján prósent ellilífeyrisþega skulda ýmist eða eiga inneign sem nemur yfir hundrað þúsund krónum hjá Tryggingastofnun vegna ársins 2014. Sólveig segir einhver frávik eðlileg því allar lífeyrisgreiðslur séu tekjutengdar. Þá sé tilgangur endurútreikninganna að tryggja að allir fái réttar greiðslur að lokum. Tryggingastofnun geri jafnframt tillögu að tekjuáætlun fyrir lífeyrisþega í upphafi árs sem þeir séu hvattir til að uppfæra breytist tekjur þeirra. Eftirlit Tryggingastofnunar með þessum tekjuáætlunum hafi aukist til að reyna að koma í veg fyrir að endurgreiða þurfi háar upphæðir eftir endurútreikning. Sólveig bendir á að allir einstaklingar sem Tryggingastofnun eigi kröfu á hafi tólf mánuði til að endurgreiða kröfuna og hægt sé að semja við Tryggingastofnun um lengri greiðslufrest.
Mest lesið Davos-vaktin: Beðið eftir ræðu Trumps Erlent Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Innlent Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu Innlent Stjórnarformaður Vélfags handtekinn í aðgerðum saksóknara Innlent Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Erlent „Það er ekki laust við að það fari um mann“ Innlent Hvað býr bakvið sólgleraugu Macron? Erlent Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Innlent Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Eldræða Carney: „Ef þú ert ekki við borðið þá ertu á matseðlinum“ Erlent Fleiri fréttir Nú má heita Friðálv Gletting Lucíuson Náðu sex byssum úr byssuskáp á Akureyri Parísarheimsókn fjárlaganefndar „mjög fróðleg“ Með 29 kíló af maríjúana í töskunum Brúnni yfir Helluvatn lokað í fimm vikur Stjórnarformaður Vélfags handtekinn í aðgerðum saksóknara „Það er ekki laust við að það fari um mann“ Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu Milljarða útspil meirihlutans „fullkomlega ábyrgðarlaust“ og lykti af prófkjörsbaráttu Ákærður fyrir nauðgun á nýársdag Markverð tíðindi í nýrri Maskínukönnun um fylgið á landsvísu Hátt í tíu þúsund manns án atvinnu í desember Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Annasamasti dagur á bráðamóttöku í lækna minnum Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Gríðarleg fjölgun hótana og dæmi um að setið sé fyrir lögreglumönnum Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Ofbeldi gegn lögreglumönnum magnast og baráttan hafin um Framsókn Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Sjá meira