Telur ný húsaleigulög meingölluð og vond Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 2. apríl 2015 12:00 Sigurður Helgi Guðjónsson, formaður Húseigendafélagsins, segir að frumvarp um breytingar á húsaleigulögum muni skaða leigumarkaðinn og gera hann ófriðlegan. Fréttablaðið/Vilhelm „
Lagahringl á ekki að viðgangast á svona viðkvæmum sviðum. Þetta frumvarp er vont og meingallað um flest og mun skaða leigumarkaðinn og gera hann erfiðari og ófriðsamlegri,“ segir Sigurður Helgi Guðjónsson, formaður Húseigendafélagsins, um nýtt húsaleigulagafrumvarp Eyglóar Harðardóttur félagsmálaráðherra. Sigurður segir frumvarpið, sem var afgreitt úr ríkisstjórn á mánudag, vera afturhvarf til laga sem giltu til ársins 1994 áður en ný lög voru samþykkt sem, að hans sögn, hafa virkað vel í yfir 20 ár og fundu jafnvægi milli leigusala og -taka. „Húsaleigulögin eru leikreglurnar sem gilda á þessum markaði. Þetta kemur til dæmis framboði á leiguhúsnæði eða leigubótum ekkert við. Ég er búinn að harka í þessum bransa í um 40 ár, sem lögmaður, kennari og prófdómari í húsaleigurétti. Ég myndi gefa þessari löggjöf falleinkunn,“ segir Sigurður. Hann segir nokkur atriði frumvarpsins beinlínis háskaleg. „Það er mjög vanhugsað að fella niður ákvæði sem undanskilur lögin frá leigu til ákveðinna hópa, það er sérstakra félagasamtaka, eins og til dæmis námsmanna, aldraðra eða öryrkja. Þetta ákvæði er forsenda þess að félagasamtök sem leigja til þessara hópa geti stundað sína starfsemi. Þetta mun rústa leigustarfsemi til dæmis Félagsbústaða, Félagsstofnunar stúdenta og fleiri,“ segir Sigurður og bætir við að mun fleira megi gera athugasemdir við í þessu frumvarpi. Sigurður gerir einnig athugasemdir við að ekkert samráð hafi verið haft við Húseigendafélagið við samningu frumvarpsins. „Við erum tæplega 100 ára félag en frumvarpið er samið af fólki sem hefur enga reynslu af húsaleigu, löggjafarstarfsemi eða lagasmíð. Þetta er úr öllum tengslum við raunveruleikann,“ segir Sigurður og bætir við að breytingarnar sem í frumvarpinu felast séu annaðhvort til óþurftar eða eyðileggingar. „Hvers vegna að laga það sem ekki er bilað? Frumvarpið í heild er vont og viðvaningslegt og eyðileggur allar helstu réttarbætur laganna frá árinu 1994. Þá hafði leigumarkaði næstum því verið útrýmt og leigusalar létu húsnæði frekar standa autt en að leigja það út. Ég vona að þessa frumvarps bíði þrautarmeðganga og andvana fæðing,“ segir Sigurður.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira