Ísland er næststærsta fiskveiðiþjóðin á Evrópska efnahagssvæðinu Óli Kristján Ármannsson skrifar 2. apríl 2015 07:00 Sá guli: Þorskur í kari á hafnarbakka. Ísland er neðarlega á topp 20 lista þeirra þjóða sem mestum afla landa í heiminum. Fréttablaðið/GVA
Nýting sjávarafla hér á landi er með því allra besta sem gerist í heiminum þótt Íslendingar séu ekki sú þjóð sem hvað mest veiðir á heimsvísu. Þetta kemur fram í úttekt í nýjasta tölublaði efnahagsritsins Vísbendingar. Þar kemur fram að undanfarin ár hafi Ísland verið í 15. til 20. sæti yfir þau lönd sem mestum sjávarafla landa í heiminum. Sé bara litið til Evrópska efnahagssvæðisins sést hins vegar hversu þungt sjávarútvegurinn vegur í samanburði við nágrannalöndin. Nýjar tölur Eurostat, evrópsku hagstofunnar, sýna að fiskveiðar Íslands árið 2013 námu tæplega 1,4 milljónum tonna, sem er næstmesti aflinn á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) á eftir Noregi sem veiddi rúmar 1,9 milljónir tonna. Í þriðja sæti er svo Spánn með veiðar upp á rúm 882 þúsund tonn.Innan EES er Ísland því með um einn sjötta af heildarveiðunum, líkt og bent er á í Vísbendingu, en Norðmenn veiddu nærri fjórðung. „Þessi tvö EES-ríki, Ísland og Noregur, veiða samtals um 40 prósent af heildarveiði á svæðinu,“ segir í ritinu. Bent er á að yrði Ísland fullgildur aðili að Evrópusambandinu þá yrði landið þar mesta fiskveiðilandið með milli fjórðung og fimmtung aflans. „Ætla má að sjónarmið landsins myndu vega þungt í greininni,“ segir þar jafnframt. Þá kemur fram í samantekt Vísbendingar að hér sé afli nýttur með skilvirkari hætti en víðast annars staðar. Nýting aflans sé best í Danmörku, á Íslandi og í Noregi. „Og hinar þjóðirnar eru langt á eftir. Sérstaklega vekur athygli að Spánverjar eru miklu neðar. Íslendingar eru með um það bil fjórum sinnum betri nýtingu á sínum flota en Spánverjar og Hollendingar.“ Þetta er sagt benda til þess að hagkvæmnin í íslenskum sjávarútvegi sé miklu meiri en hjá þessum þjóðum. „Væri sjávarútvegur innan Evrópusambandsins rekinn á samkeppnisgrunni væri staða íslensku útgerðanna mjög góð, enda eiga íslenskar útgerðir fyrirtæki innan Evrópusambandsins.“ Í grein Vísbendingar er líka slegið á sögusagnir um að íslenskum sjávarútvegi kynni að stafa hætta af spænska fiskveiðiflotanum yrði af aðild Íslands að Evrópusambandinu. Vegna reglunnar um hlutfallslegan stöðugleika myndu aðeins íslenskar útgerðir hafa veiðiheimildir í íslenskri landhelgi. Svipaðar sögur af Spánverjum hafi gengið bæði í Bretlandi og Danmörku. „En á báðum stöðum hefur þó útgerðin haldist í eigu og forsjá heimamanna.“
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira