Mikilvægt að greina einhverfu snemma Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 2. apríl 2015 13:01 Þetta er í áttunda sinn sem að 2. apríl er helgaður einhverfu. Vísir/Getty
Mikilvægt að greina einhverfu hjá fólki snemma á ævinni þar sem gríðarlegur árangur næst oft hjá þeim börnum sem greinast fyrir fimm ára aldur. Þetta segir formaður stjórnar Styrktarfélags barna með einhverfu en alþjóðlegur dagur einhverfu er í dag.Þetta er í áttunda sinn sem að annar apríl er helgaður einhverfu. „Út um heim allan þá er í dag verið að fagna í raun og veru því og vekja athygli á málefnum einhverfra og hér á Íslandi þá er dagurinn oft nýttur til þess bara hreinlega að reyna að opna fyrir þessa umræðu um hvað einhverfa er og sem sagt slá á þessar ranghugmyndir og mýtur sem að oft eru í gangi,“ segir Ragnhildur Ágústdóttir móðir tveggja drengja með einhverfu og formaður stjórnar Styrktarfélag barna með einhverfu. Ragnhildur segir fólk oft hafa ranga og ýkta mynd af einhverfu sem sé jafnvel lituð af því sem það sér í kvikmyndum eins og myndinni Rain Man. „ Þar eru svona ýkt dæmi sem að jú vissulega gerast en þau eru bara mun sjaldgjæfari heldur en hitt. Það eru líka til bara mjög mikið af einstaklingum sem eru einhverfir og það sést ekkert utan á þeim,“ segir Ragnhildur. Ragnhildur segir að talið sé að um eitt prósent fólks sé með einhverfu. Undanfarið hafi þeim fjölgað sem greinast á fullorðinsárum. Hún segir það mikilvægast að greiningar komi snemma á ævinni. „ Það er oft talað um það að það sé gríðarlega mikilvægt að börn greinist fyrir fimm ára aldur af því þá eru þau svo móttækileg og þá er svo mikið hægt að gera. Þá er hægt að byrja markvissa þjálfun,“ segir Ragnhildur og að með þessari þjálfun sé oft hægt að ná gríðarlegum árangri. Styrktarfélag barna með einhverfu stendur í apríl í annað sinn fyrir styrktar- og vitundarátakinu Blár apríl. Stofnanir og fyrirtæki verða meðal annars lýst upp í bláum lit þennan mánuðinn.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira