Innlent

Áhöfnin á Polar Amaroq styrkja systur um eina milljón króna

Atli Ísleifsson skrifar
Systurnar Áslaug Ýr og Snædís Rán eru algjörlega háðar túlkaþjónustu.
Systurnar Áslaug Ýr og Snædís Rán eru algjörlega háðar túlkaþjónustu. Vísir/Vilhelm
Áhöfnin á grænlenska uppsjávarskipinu Polar Amaroq afhendir í dag systrunum Áslaugu Ýri og Snædísi Rán Hjartardætrum styrk að upphæð eina milljón króna.

Styrkurinn er ætlaður til að kosta þjónustu túlka í fyrirhugaðri sumarbúðaferð þeirra systra til Danmerkur á komandi sumri.

Í frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar segir að vegna fötlunar eru systurnar algjörlega háðar túlkaþjónustu en fyrir lá að þær þyrftu að kosta slíka þjónustu sjálfar í ferðinni og það var þeim ummegn án utanaðkomandi aðstoðar.

Geir Zoega skipstjóra á Polar Amaroq sagði í samtali við fréttamann Síldarvinnslunnar að áhöfnin muni afhendi styrkinn með með mikilli ánægju. „Við vorum að ljúka við að þrífa skipið að aflokinni loðnuvertíð þegar við sáum viðtal við systurnar í sjónvarpsfréttum,“ sagði Geir.

„Þar kom fram að þær myndu ekki geta farið í langþráða sumarbúðaferð án túlkaþjónustu og þær gætu engan veginn ráðið við að greiða kostnað vegna túlkanna úr eigin vasa. Við í áhöfninni eigum starfsmannasjóð og í honum var ein milljón króna. Það kom strax fram sú hugmynd að afhenda systrunum sjóðinn sem styrk til að standa straum af kostnaði vegna túlkanna.“

mynd/Kristín Svanhvít Hávarðsdóttir
.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×