Bölvaðirðu vinnunni í dag? Forfeður þínir fengu frí fram á fimmtudag Stefán Ó. Jónsson skrifar 26. maí 2015 11:07 „Þessi niðurfelling helgidaga hafa fallið íslenskum jarðeigendum vel í geð, en vinnufólki miður.“ VÍSIR/VILHELM/GETTY
Íslendingar hafa eflaust margir hverjir bölvað því að þurfa að mæta aftur til vinnu eftir hátíðahöld hinnar þriggja daga löngu hvítasunnuhelgar. Þeir geta þakkað það iðjuleysi forfeðra sinna en langt fram eftir öldum fögnuðu Íslendingar ekki einungis öðrum í hvítasunnu heldur einnig þeim þriðja, og jafnvel fjórða - allt þangað til Danakonungur tók upp hanskann fyrir atvinnurekendur og skikkaði fólk aftur til vinnu. Hvítasunnudagur var, og er, einn af þremur helstu atburðum kirkjuársins og er haldinn hátíðlegur til að minnast heilags anda og stofnunar kristinnar kirkju. Gyðingar minnast þess einnig að á þessum degi afhenti guð Mósesi boðorðin tíu á Sínaí-fjalli. Í bókinni Sögu Daganna greinir Árni Björnsson frá því að allt fram undir lok 12. aldar hafi verið þrí- og jafnvel fjórheilagt á hvítasunnu - það er, að Íslendingar hafi lagt niður störf allt fram á fjórða dag hvítasunnu. Þegar fram var komið á 13. öld hafi þó ekki verið nema tvíheilagt fram til siðaskipta því nauðsynlegt var fyrir hið íslenska bændasamfélag að nýta sem best hið stutta sumar hér á landi með því að takmarka helgi hátíðarinnar.Kristján sjöundi Danakonungur ríkti frá 1766 til 1808MYND/WIKIPEDIALengd hvítasunnuhelgarinnar breyttist aftur við siðaskiptin en í skipan frá Danakonungi frá árinu 1537 var að ákveðið að kristilegu stórhátíðarnar þrjár; páskar, jól og hvítasunna skyldu allar vera þríhelgar. Hafði það í för með sér að hátíðahöld jóla og páska voru stytt um einn dag en hvítasunnuhátíðin lengd sem því nam. Það fyrirkomulag entist í rétt rúm 200 ár þegar þriðji helgidagurinn var numinn af öllum hátíðunum þremur árið 1770 ásamt helgi annarra hátíðisdaga -þeirra á meðal þrettándanum sem einnig hafði verið helgi-og frídagur. Ákvörðunin var gefin út í nafni Danakonungs, sem þá var Kristján sjöundi, en í henni segir meðal annarsÞar sem reynslan sýnir eins og oftar að þótt stofnun slíkra daga hafi eflaust átt sér gott og guðlegt markmið hafa þeir fremur orðið tilefni til iðjuleysis og þeirra lasta annarra sem þar af stafar en til sannrar og alvarlegrar guðsdýrkunar.Ástæður þessarar styttingar telur Árni Björnsson þó vera af veraldlegri toga: „hinir mörgu helgidagar hlutu að vera þyrnir í augum þeirra sem högnuðust á sem mestu striti vinnufólks.“ Hugmyndir upplýsingarinnar um hagnýtingu voru farnar að ryðja sér til rúms í Evrópu og víst má því telja að „þessi niðurfelling helgidaga hafa fallið íslenskum jarðeigendum vel í geð, en vinnufólki miður.“ Hvort íslenskir atvinnurekendur nútímans séu á sama máli og landeigendur átjándu aldar skal þó ósagt látið.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Sjá meira