Fannst í ruslinu: Kettlingum fleygt inn um glugga og stundum drekkt Stefán Ó. Jónsson skrifar 15. maí 2015 11:18 Vísir/Vilhelm „
Hann var nýlosnaður við blámann úr augunum, svo lítill var hann“ segir Steinþór Helgason um kettling sem fannst í ruslatunnu fyrir utan Sorpu við Sævarhöfða í Grafarvogi. Að sögn Steinþórs skapaðist mikil umræða um fundinn á netinu eftir að hann birti myndband af kettlingnum á Facebook-síðu sinni en Steinþór segir kettlinginn hafa verið afar illa á sig kominn þegar hann fékk hann í sínar hendur. „Hann var með sand í augunum, rauð eyru og alveg drulluskítugur þegar hann fannst,“ segir Steinþór. Myndband sem Steinþór birti af kettlingnum má sjá hér hér að neðan.Posted by Steinþór Helgason on Thursday, 14 May 2015Hann grunar að fyrrum eigandi kattarins hafi viljað losað sig við hann með þessum hætti og blæs á allar vangaveltur um að kettlingurinn sé villiköttur eins og margir vinir Steinþórs létu í veðri vaka eftir að hann birti myndbandið. „Ég held að fólk segi það einungis til að láta sér líða betur. Mér finnst hann vera það húsvanur að það fer varla á milli mála að hann hafi verið í húsi áður. Hann var alla vega kassavanur og það er svo sannarlega merki um að hann hafi verið á heimili áður,“ segir Steinþór. Hann hafi þá sjálfur í starfi sínu við sorphirðu fundið þrjá ketti í ruslatunnum og segir dæmi sem þessi langt frá því að vera einsdæmi.Steinþór Helgason segir dæmi sem þessi mýmörg.Halldóra Snorradóttir hjá Kattholti tekur í sama streng. Mikið hafi borið á því að eigendur katta losi sig við þá með ómannúðlegum hætti. „Köttum hefur verið hent inn um gluggann hjá okkur, þeir eru yfirgefnir í kössum við bensínstöðvar og þá hefur fólk jafnvel sett kettlinga í strigapoka og losað sig við þá í Heiðmörk“ segir Halldóra. Þá hafi þeim í sumum tilvikum verið drekkt - „og því kemur lítið á óvart að kettlingur hafi fundist í ruslatunnu,“ bætir hún við. Hún telur ástæður þess að kattaeigendur losi sig við dýrin sín með þessum hætti séu oft fjárhagslegar. Margir eigendanna telji sig ekki hafa efni á því að svæfa kettina sína og grípi því til ómannúðlegra ráðstafana.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira