„Þessi strákur er ótrúlega flottur“ Atli Ísleifsson skrifar 11. febrúar 2015 21:35
Jason Ýmir Jónasson, 13 ára strákur, var í dag verðlaunaður sem ungi upphringjandi ársins í tilefni af 1-1-2 deginum. „Þessi strákur var ótrúlega flottur. Hann fór þarna út að hjálpa eldri konu sem hafði dottið,“ segir Elva Björk Björnsdóttir, starfsmaður Neyðarlínunnar, í samtali við Ísland í dag fyrr í kvöld. Elva Björk segist vel muna eftir símtalinu frá Jasoni. „Þetta var óveðursdaginn og ég var nú bara að vinna uppi á skrifstofu þegar ég hljóp niður til að grípa í símann. Það var mikið að gera. Hann var ótrúlega rólegur og yfirvegaður,“ segir Elva Björk. 16. desember síðastliðinn gekk mikið vonskuveður yfir suðvesturhorn landsins. Rok var og snjókoma og var fólk beðið um að vera ekki á ferðinni að óþörfu. Jason Ýmir kom þá eldri konu til bjargar þar sem hún hafði dottið og fótbrotnað, en Jason var þá staddur í Setbergsskóla. Tómas Gíslason, aðstoðarframkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, segir Jason Ými hafa farið út úr skólanum og sinnt konunni. „Hún reynist vera fótbrotin. Hann kemur henni í skjól og hringir svo í Neyðarlínuna. Hann er mjög skýr þegar hann segir hvert Neyðarlínan eigi að senda hjálp og hversu mikið liggi á því konunni sé að kólna. Ég held að hann hafi verið komið úr úlpu, eða hafi alla vega verið að skýla henni vel. Hann var svo með henni þangað til að sjúkrabíll kom á staðinn.“ Sindri Sindrason ræddi við foreldra Jasonar, starfsmenn Neyðarlínunnar og svo að sjálfsögðu Jason sjálfan um mikilvægi þess að kunna númerið 1-1-2.
Mest lesið Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Það er jóker í spilinu Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Innlent Fleiri fréttir Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Sjá meira