Framkvæmdir í borginni: Laugavegur við Kringlumýrarbraut lokaður yfir helgina Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 30. apríl 2015 16:26 Hér má sjá kort af staðnum sem lokaður er. Mynd/Skjáskot af vef Reykjavíkurborgar
Leggja á nýja vatnslögn þvert undir Laugaveg upp við Kringlumýrarbraut nú um helgina. Því verður lokað tímabundið fyrir umferð á því svæði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. „Lokað verður frá kl. 18.00 á föstudag og umferð beint um hjáleiðir. Opnað verður á ný kl. 7.00 á mánudag,“ segir í tilkynningu. „Kringlumýrarbraut verður opin, en ekki verður hægt að beygja inn á Laugaveg. Bílaumferð niður Suðurlandsbraut þarf einnig að fara um hjáleiðir, en gangandi og hjólandi komast stíginn meðfram Laugavegi.“ Strætisvagnar sem keyra þessa leið halda áfram að ganga en óhjákvæmilegt er að nokkrar biðstöðvar falli út á meðan á framkvæmdunum stendur. Strætó mun nota hjáleiðir um Borgartún og Nóatún og þær biðstöðvar sem falla út verða vel merktar samkvæmt upplýsingum frá borginni. „Framkvæmdin um helgina er hluti af endurnýjun 600 mm vatnslagnar meðfram Kringlumýrarbraut frá dæluhúsi neðan við Laugaveg upp að Miklubraut. Vatnslögnin verður lögð meðfram núverandi gönguleið og þar kemur nýr hjólastígur. Jarðvegsframkvæmdir nýtast þannig bæði vatnslögninni og hjólastígnum. Verkefnið er unnið í samstarfi Reykjavíkurborgar, Orkuveitunnar, Mílu og Vegagerðarinnar,“ segir í tilkynningunni. Í frétt á vef Reykjavíkurborgar eru fleiri ljósmyndir og kort sem sýnir hjáleiðir.
Mest lesið Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent „Dýrlegt veður eins langt og séð verður“ Veður Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Innlent Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Innlent Kona réðst á pizzasendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Fleiri fréttir Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Vara við bikblæðingum á Bröttubrekku Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Sjá meira