Strauk úr ferð til tannlæknis 8. ágúst 2015 12:00 Verið var að flytja fangann til tannlæknis nærri Hlemmi þegar hann tók á rás og flúði. fréttablaðið/anton
Fjölmennt lið lögreglu var ræst út um tvöleytið í gær eftir að fangi slapp úr haldi fangavarða í Reykjavík. Verið var að flytja fangann til tannlæknis nærri Hlemmi þegar hann tók á rás og flúði. Páll Winkel fangelsismálastjóri staðfestir í samtali við Vísi að fanginn hafi sloppið en svo fundist nokkrum mínútum síðar, sem betur fer. Hann sagðist enn þá vera að taka saman upplýsingar vegna flóttans. Honum væri samt létt að fanginn hefði fundist jafnfljótt og varð raunin. „Þetta er maður sem maður hefði ekki viljað sjá lausan mjög lengi,“ segir Páll. „Lögregla brást skjótt við og þetta gekk upp.“ Stutt er síðan tveir fangar flúðu af Kvíabryggju og vakti flóttinn nokkra athygli í fjölmiðlum enda ekki algengt að föngum takist að strjúka. Flóttinn nú var annars eðlis. Um fanga úr lokuðu fangelsi, Litla-Hrauni, var að ræða og var verið að flytja hann til borgarinnar í skoðun hjá tannlækni. Maðurinn var ekki í handjárnum og segir Páll að tekin sé ákvörðun hverju sinni hvort notast eigi við hand- og fótjárn eða ekki. „Við gætum að mannvirðingu eins og við getum þannig að menn eru ekki fluttir í hand- og fótjárnum hverju sinni,“ segir Páll. Málið verði nú yfirfarið og reynt að búa svo um hnútana að svona endurtaki sig ekki. Flótti sem þessi sé sjaldgæfur en komi þó fyrir. Fanginn hefur setið inni í nokkra mánuði og á einnig mánuði eftir af afplánun. Flóttinn mun ekki lengja afplánun hans en getur þó haft áhrif á reynslulausn. Þá fái menn sem strjúka ekki að afplána í opnum fangelsum. „Það græðir enginn á þessu, allra síst fanginn.“
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Fleiri fréttir Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Sjá meira