Umtalað myndband af Quiznos í Grafarvogi: "Hún tekur þetta afskaplega nærri sér“ Birgir Olgeirsson skrifar 5. nóvember 2015 15:39 Quiznos, þó ekki í Grafarvogi. Vísir/Stefán
Eitt umtalaðast myndbandið á Íslandi í dag var tekið upp á skyndibitastaðnum Quiznos á Olísstöðinni í Grafarvogi í gær. Þar sést starfsmaður Quiznos útbúa svokallaðan samlokubát með hníf sem hafði legið á gólfinu. Myndbandið hefur fengið tæp 25 þúsund áhorf eftir að það var birt á Facebook í gærkvöldi. Það er ekki lengur aðgengilegt öllum á samfélagsmiðlinum. Viðskiptavinurinn sem tók myndbandið upp sagðist hafa gert athugasemd við þessi vinnubrögð og þá hafi starfsmaðurinn útbúið nýjan bát þar sem hann hafði dregið fram hreinan hníf og skipt um hanska. Í athugasemdum fyrir neðan myndbandið voru nokkrir sem hrósuðu viðskiptavininum fyrir að birta myndbandið en aðrir eru á því að þeir hefðu látið athugasemdina nægja og myndbandið muni ekki gera annað en að láta starfsmanninum líða illa. Aðrir sögðu þó birtingu myndbandsins mikilvæga til að tryggja að svona komi ekki fyrir aftur. Ein þeirra sem tjáði sig í athugasemd við myndbandið er Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir sem er framkvæmdastjóri smásölusviðs Olís. Hún þakkaði viðskiptavininum kærlega fyrir ábendinguna og sagði ljóst að þetta væru mistök hjá starfsmanninum sem séu ekki til eftirbreytni og ekki samkvæmt gæðastöðlum fyrirtækisins. „Við munum að sjálfsögðu fara yfir þetta atvik með okkar starfsfólki, svo að vinnubrögð sem þessi endurtaki sig ekki,“ skrifaði Sigríður Hrefna sem segist í samtali við Vísi hafa rætt við starfsmanninn. „Ég var með henni bara núna í hádeginu þegar hún mætti á vaktina. Þarna áttu sér stað mannleg mistök og ljóst að það hefur ekki verið unnið eftir þeim gæðaviðmiðum sem við höfum unnið eftir,“ segir Sigríður Hrefna. Hún segir viðkomandi starfsmann halda starfinu en hafi tekið þessu öllu afar nærri sér. „Við höfum tekið vel utan um hana. Hún tekur þetta afskaplega nærri sér og hefur átt mjög erfitt því fyrir einstakling að fá svona myndbirtingu er náttúrlega all svakalegt. Eins og gefur að skilja er þetta ungur starfsmaður hjá okkur og átti reglulega erfitt.“
Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Erlent Fleiri fréttir Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann Sjá meira