Bætur skipta litlu ef nám og vinnu vantar Svavar Hávarðsson skrifar 31. mars 2015 07:00 Fréttablaðið/GVA „
Ef ekki verður farið heildstætt í þessi mál og komið á betrunarstefnu í fangelsunum þá skiptir í raun engu hvort einstaklingurinn fari á atvinnuleysisbætur eða örorku,“ segir Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, um frumvarp til laga um rétt fanga til atvinnuleysisbóta að lokinni afplánun. Guðmundur tekur fram að frumvarpið sé mjög jákvætt skref og vissulega mikið öryggisnet fyrir einstakling sem er að losna úr afplánun að eiga bótarétt á meðan á atvinnuleit stendur. „Það þarf hins vegar að undirbúa fanga til þess að koma aftur út í lífið með verknámi eða starfsþjálfun til þess að hafa möguleika á atvinnu eftir að þeir losna, en til þess að það verði að veruleika þarf heildstæða stefnumótun í fangelsiskerfinu. Við höfum bent á þetta og einnig bíðum við eftir svari innanríkisráðherra um fund um þessi mál,“ segir Guðmundur Ingi. Það eru sjö þingmenn sem standa að baki frumvarpinu. Flutningsmaður þess er Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. Lagt er til að ef fangi hefur stundað nám, vinnu eða starfsþjálfun til samræmis við lög um fullnustu refsinga, þá teljist hann tryggður samkvæmt atvinnuleysistryggingalögum, þ.e. eins og hann hefði verið í launaðri vinnu á sama tímabili. Án þessara réttinda, eins og er í dag, eykur það líkur á því að fangar brjóti á ný af sér og stríðir þannig gegn því markmiði refsivörslukerfisins að vinna gegn afbrotum og hjálpa einstaklingum sem hafa brotið af sér að snúa við blaðinu, eins og segir í greinargerð frumvarpsins. Guðmundur Ingi segir að þau verkefni sem föngum bjóðast inni í fangelsunum séu fá og ekki uppbyggileg. „Í dag er ekkert starfsnám í boði og vinna af mjög skornum skammti, og í raun er öll atvinna sem í boði er eitthvað sem gagnast þér lítið í lífinu,“ segir Guðmundur Ingi og telur stöðuna hvað þetta varðar verri í dag en hún var lengi vel. „Það hefur öllu hrakað í fangelsiskerfinu; við erum í raun langt á eftir öðrum þjóðum.“ Páll Winkel fangelsismálastjóri er jákvæður gagnvart þingmálinu um atvinnuleysisbótarétt fanga að afplánun lokinni. „Það skiptir grundvallarmáli að þegar menn eru búnir að taka út sína refsingu að þeir hafi tækifæri til að koma út í samfélagið sem góðir og gegnir þegnar. Það segir sig sjálft að maður sem hefur að engu að hverfa eftir afplánun á ekki mikla möguleika í samfélagi manna,“ segir Páll og telur að gangi málið í gegn geti það skipt máli fyrir marga að hafa það öryggi sem í slíkum réttindum felst. Um atvinnumöguleika fanga segir Páll að yfirvöldum beri að útvega vinnu, og möguleikarnir hafi aukist t.d. á Litla-Hrauni. Hins vegar sé það ekki einfalt mál að fá fyrirtæki eða einstaklinga til að óska eftir vinnuframlagi fanga. Eins komi samkeppnismál hér inn í þar sem fangar fái lága þóknun fyrir sitt vinnuframlag.
Mest lesið Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Innlent Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Innlent Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Fleiri fréttir Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Stefni í endurtekningu á síðasta vori Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Sjá meira