Læk skiptir máli en getur haft slæmar afleiðingar í för með sér Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 13. febrúar 2015 15:00 vísir/gva
Hvað er „læk“? Er lækið kannski eitthvað meira en bara „vel gert“? Hefur það dýpri merkingu? Að þessu var spurt á morgunverðarfundi Advania um áhrif samfélagsmiðla á börn og unglinga. Yfirskrift fundarins var: „Lífið er læk“. Spurningunni er ekki auðsvarað og skoðanir á þessu einfalda „læki“ eru afar misjafnar, eins og komist var að á fundinum í morgun. Um fjórtán prósent nemenda í 8. til 10. bekk á höfuðborgarsvæðinu verja meira en fjórum klukkustundum eða meira á samskiptamiðlum á degi hverjum, og um 15 prósent nemenda á landsbyggðinni. Það nemur hálfum vinnudegi, en þarna er ekki tekin með önnur tölvunotkun, sem og tölvuleikjanotkun.Sífelldur samanburður„Læk“ skiptir miklu máli í lífi unglinga að sögn Hrefnu Sigurjónsdóttur, framkvæmdastjóra Heimilis og skóla, sem tók fyrst til máls. „Félagslífið er að miklu leyti á netinu og það skiptir máli að fá læk. Sumir unglingar eru jafnvel með aðganga til að læka oftar á myndirnar sem þeir eru að pósta. Oft er það þannig að ef þú færð ekki læk þá er verið að útiloka þig. Þú ert ekki vinsæll, ekki æskilegur,“ sagði Hrefna. Foreldrar þyrftu að stíga inn í, því netið og lækin mættu ekki taka yfir sjálfsímynd barnsins. Með þessu beri þau sig sífellt saman við aðra og það geti leitt af sér þunglyndi.Frá fundinum í morgun.vísir/gvaÞessi stöðugi samanburður á þó ekki einungis við um börn og unglinga, að sögn Hrefnu. Hún segir það algengt að fólk, börn og fullorðnir, búi sér til eins konar „gerviheim“ eða glansmynd af lífi sínu. Þegar fólki finnst það svo ekki standast samanburð geti það leitt af sér þunglyndi, eða Facebook þunglyndi eins og Hrefna orðaði það. Hægist á þroska„Þetta er í raun eins og dæmigert þunglyndi sem getur orðið til þess að unglingar loka sig af eða draga sig í hlé. Sumir leita sér hjálpar á vafasömum síðum, sem til dæmis hvetja til vímuefnanotkunar, óábyrgs kynlífs eða sjálfsskaða.“ Þá sagði hún að einnig væru fjölmörg dæmi um að börn og unglingar glími við mikla streitu sökum internetsins og samfélagsmiðlanna allra. Áreitið sé gríðarlegt, sérstaklega þegar síminn klingi viðstöðulaust. „Ef þetta fer yfir mörkin þá getur þetta valdið ákveðnum kvíða eða streitu. Það getur orðið árátta að þurfa alltaf að bregðast við pípinu,“ sagði hún. Hrefna sagði foreldra verða að stíga inn í, kynna sér hlutina og ræða við börnin. Leggja niður snjalltækin og kenna þeim skil á netheimum og raunheimum. „Einnig þarf að hafa í huga að ef þú ert að nota netið og tölvuleiki þá hefur það áhrif á samskiptahæfni og þroska. Það er vel þekkt að að það hægist á þroska eftir því sem aðilinn sekkur meira inn í heim tölvunnar.“
Tengdar fréttir Líf foreldra á tækniöld ekki alltaf auðvelt Hermann Jónsson, faðir og skólastjóri Advania-skólans, segir foreldra á tækniöld verða að afla sé þekkingar, því netið sé orðinn svo stór partur af lífi barna. 13. febrúar 2015 12:15 Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Sjá meira
Líf foreldra á tækniöld ekki alltaf auðvelt Hermann Jónsson, faðir og skólastjóri Advania-skólans, segir foreldra á tækniöld verða að afla sé þekkingar, því netið sé orðinn svo stór partur af lífi barna. 13. febrúar 2015 12:15