Síbrotamaður dæmdur fyrir hylmingu og þjófnað Atli Ísleifsson skrifar 13. febrúar 2015 15:17 Maðurinn er meðal annars dæmdur fyrir að hafa haft 19 feta hraðbát að verðmæti fimm milljónum króna undir höndum þrátt fyrir að hafa verið ljóst að um þýfi væri að ræða og þannig haldið munum ólöglega fyrir eigendum. Vísir/Valli
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Jónas Svan Albertsson í eins og hálfs árs fangelsi fyrir hylmingu, þjófnað, fíkniefnalagabrot og umferðarlagabrot. Maðurinn er meðal annars dæmdur fyrir að hafa haft 19 feta hraðbát að verðmæti fimm milljónum króna undir höndum þrátt fyrir að hafa verið ljóst að um þýfi væri að ræða og þannig haldið munum ólöglega fyrir eigendum. Bátnum var stolið úr áhaldahúsi í Hvalfirði í ágúst 2013 og fannst við Þingvallavatn nokkrum dögum síðar. Maðurinn er einnig dæmdur fyrir að hafa haft sea-doo sæþotu undir höndum að verðmæti 1,5 milljón króna, þrátt fyrir að hafa verið ljóst að um þýfi væri að ræða. Tækið fannst í Grafarvogi eftir að hafa verið stolið frá bifreiðastæði við Langholtsveg. Einnig var hann dæmdur fyrir að hafa verið með stolinn heitan pott og rafmótor á heimili sínu í Mosfellsbæ. Í dómnum segir að hann sé einnig dæmdur fyrir þjófnað með því að hafa farið með lykli sem hann hafði komist yfir, inn í íbúðarhúsnæði í Grafarvogi og „stolið þaðan 42“ sjónvarpi, tveimur macbook pro fartölvum, playstation 3 tölvu, geislaspilara, vínilspilara, peningaskáp, þremur myndavélum og appelsínugulri 66°N úlpu.“ Dómurinn fann manninn einnig sekan um að hafa haft 1,53 grömm af amfetamín í fórum sínum og að hafa ekið bíl undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Jónas er fæddur árið 1978 og hefur frá árinu 1995 tíu sinnum verið dæmdur fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Auk þess að hljóta átján mánaða fangelsisdóm var hann jafnframt sviptur ökurétti ævilangt.
Mest lesið Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Það er jóker í spilinu Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Erlent Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Innlent Fleiri fréttir Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Sjá meira