VR krefst 254 þúsunda lágmarkslauna Heimir Már Pétursson skrifar 13. febrúar 2015 18:03
VR krefst þess að lægstu laun félagsmanna hækki um 40 þúsund krónur á mánuði og lágmarkslaun verði 254 þúsund krónur, í samningi sem gerður verði til eins árs. Kostnaður atvinnurekenda af þessu verði tæpir sjö milljarðar króna eða um 5,3 prósent. Nú þegar VR hefur lagt fram kröfugerð sína hafa verkalýðsfélög með um 60 þúsund meðlimi lagt fram kröfur sínar. En um eitt hundrað þúsund manns eru í verkalýðsfélögum innan Alþýðusambandsins. Samkvæmt þeim kröfum sem forysta VR lagði fyrir Samtök atvinnulífsins í dag myndu mánaðarlaun að meðaltali hækka um 24 þúsund krónur fyrir fullt starf. Að auki verði greidd svo kölluð launaþróunartrygging upp á 50 þúsund krónur, en frá þeirri upphæð myndu launahækkanir þess kjarasamnings sem er að renna út dragast frá. Það myndi þýða að einstaklingur í fullri vinnu á lægstu taxtalaunum fengi 40 þúsund króna launahækkun eða leiðréttingu. Ef gengið yrði að kröfum VR hækkuðu lágmarkslaun úr 214 þúsund krónum í 254 þúsund. Ólafía B. Rafnsdóttir formaður VR segir þetta raunhæfar kröfur. „Að okkar eru þær það. Við lögðum fram mjög góðar og ítarlegar skýringar og útreikninga með okkar kröfugerð og byggjum á þeim að þetta séu mjög raunhæfar kröfur, já,“ segir Ólafía. Samningurinn muni kosta viðsemjendur VR tæpa sjö milljarða króna að mati félagsins eða um 5,3 prósent. Aukinn kaupmáttur skili sér á móti til fyrirtækjanna því 75 til 80 prósent launa fari í einkaneyslu.Þið viljið eingöngu semja til eins árs, hvers vegna ekki til lengri tíma?„Það er einfaldlega vegna þess að við lítum svo á að staðan í dag sé ekki nægjanlega traust. Myndin er ekki nægjanlega skýr. Við höfum áhyggjur af hvernig við förum inn í afnám gjaldeyrishaftanna og svo er traustið til stjórnvalda einfaldlega ekki gott,“ segir Ólafía.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Sjá meira