900 hjúkrunarfræðingar gætu hætt næstu þrjú árin ingibjörg bára stefánsdóttir skrifar 16. apríl 2015 07:00 Nemendur við hjúkrunarfræðideild Háskólans á Akureyri. Mynd/háskólinn á Akureyri
Um 900 hjúkrunarfræðingar mega hætta störfum sökum aldurs á næstu þremur árum. Á sama tíma er gert ráð fyrir að 400 til 500 hjúkrunarfræðingar útskrifist. Á þetta er meðal annars bent í nýrri skýrslu Vinnumálastofnunar um stöðu og horfur á vinnumarkaði 2015 til 2017. Samkvæmt könnun sem Félag hjúkrunarfræðinga gerði í október í fyrra íhuga um 30 prósent hjúkrunarfræðinga að flytja af landi brott á næstu tveimur árum.Ólafur G. Skúlason„80 prósent á aldrinum 24 til 34 ára hugleiðir flutning af landi brott. 35 prósent af þeim sem eru 45 ára og eldri íhuga að flytja utan,“ segir Ólafur G. Skúlason, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hann segir nauðsynlegt að hækka laun og fjölga námsplássum til þess að hægt verði að anna eftirspurn eftir hjúkrunarfræðingum á íslenskum hjúkrunarstofnunum. „Ef allir hætta sem mega og fjöldi flytur til útlanda blasir mikill vandi við. Það er nú þegar skortur á hjúkrunarfræðingum,“ tekur hann fram. Helga Jónsdóttir, forseti Hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands, segir námsplássin hafa verið 70 til 95 en undanfarin ár hafi um 70 útskrifast að meðaltali á hverju ári. Um 150 til 250 hafi reynt við samkeppnispróf við lok haustannar undanfarin ár. Inntöku í námið verður nú breytt með sérstöku aðgangsprófi, svokölluðu A-prófi, sem umsækjendur þreyta í mars og júní. „Plássin verða 100 í haust. Með þessu erum við meðal annars að reyna að koma til móts við þarfir. Okkur er vel ljóst að það vantar marga hjúkrunarfræðinga en fjárveitingar til deildarinnar hafa aldrei verið í samræmi við eðli námsins. Það hefur margsinnis verið bent á það í úttektarskýrslum.“Sigfríður Inga karlsdóttirUmsækjendur um hjúkrunarnám við Háskólann á Akureyri munu ekki þreyta aðgangspróf í ár. „Þetta verður óbreytt að svo stöddu. Allir sem skrá sig og standast kröfur um inntöku geta hafið nám á haustmisseri og tekið samkeppnispróf í lok þess. Við höfum haft góða reynslu af slíku fyrirkomulagi. Við viljum gefa öllum tækifæri til að læra það sem þeir hafa áhuga á og sýna síðan kunnáttu sína,“ segir Sigfríður Inga Karlsdóttir, starfandi formaður hjúkrunarfræðideildar Háskólans á Akureyri. Hún getur þess að síðasta haust hafi 142 skráð sig í námið, 121 tekið öll samkeppnisprófin og 51 komist áfram. „Plássin eru 50 en það komst einn áfram til viðbótar vegna þess að tveir voru með sömu einkunn.“ Það er mat Sigfríðar að námsplássin þyrftu að vera fleiri. „Miðað við þær kröfur sem við gerum um klínískt nám á stofnunum getum við ekki tekið inn fleiri. Það hefur verið rætt um að nýta göngudeildarþjónustu í þessu samhengi. Það verður að vísu ekki næsta vetur en okkur dreymir um það.“
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Sjá meira