Sagði lækninum að taka bara fæturna af 16. apríl 2015 07:45 Garcia-Tolson mátaði gervifætur hjá Össuri til að sjá með hverjum þeirra hann gæti hlaupið hraðast. fréttablaðið/ernir
Ólympíufarinn Rudy Garcia-Tolson er staddur hér á landi til að prófa gervilimi frá Össuri. Báða fæturna vantar á Rudy en þeir voru teknir af fyrir ofan hné þegar hann var barn. „Ég fæddist með fætur en ég gat ekkert notað þá, þegar ég var fimm ára sagði ég lækninum að taka þá bara af, mig langaði að geta gengið og hlaupið eins og systkini mín,“ segir Rudy. Það var sannarlega rétt ákvörðun því Rudy stefnir nú að því að komast á Ólympíumót fatlaðra 2016 og keppa í bæði sundi og hlaupum. „Við erum að máta fætur og reyna að finna út hvernig ég get hlaupið sem hraðast.“ Rudy hefur þrisvar áður tekið þátt á Ólympíumótinu. Hann vann gull í Peking árið 2008 og setti heimsmet í 200 metra sundi í London árið 2012. Þá hefur Rudy einnig keppt í þríþraut með leikaranum Robin Williams. „Robin hjólaði og ég synti,“ segir Rudy, en hann er talsmaður samtaka fatlaðra íþróttamanna (CAF) sem voru studd af leikaranum. Rudy hefur ferðast um öll Bandaríkin og haldið fyrirlestra og sagt frá reynslu sinni sem fatlaður íþróttamaður. Hann hélt fyrirlestur hjá Íþróttafélagi fatlaðra á þriðjudaginn þar sem hann talaði við afrekshóp barna í sundi og frjálsum íþróttum. „Ég upplifi mig ekki fatlaðan þegar ég er að synda og hlaupa og vil koma því til skila til krakkanna.“
Mest lesið Björgvin Halldórsson látinn Innlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Innlent Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Erlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent Fleiri fréttir Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Tilkynnt um þjófnað í þremur verslunum Goðsögn fallin frá Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Sjá meira