Reka eigi ferðaþjónustu á forsendum þjóðgarðs Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 16. apríl 2015 19:45
Samhliða fjölgun ferðamanna hefur náttúrufari Þingvalla hnignað á síðustu árum. Þjóðgarðsvörður segir að reka eigi ferðaþjónustu á forsendum þjóðgarðsins, ekki öfugt, en þörf er á um fimm hundruð og fimmtíu milljónum til að tryggja náttúru Þingvalla. Frá árinu tvö þúsund og fjögur hefur ferðamönnum fjölgað um sjötíu og sjö prósent. Á síðasta ári óskaði Þjóðgarðsvörður eftir því að Náttúrufræðistofnun Íslands tæki að sér að meta ástand náttúrufars á svæðinu. Fréttablaðið og Stöð 2 hafa greint frá niðurstöðum greinagerðarinnar í vikunni. Á síðustu árum hefur margt verið gert á Þingvöllum til að taka á móti auknum fjölda ferðamanna. Nægir að nefna ný bílastæði og auðvitað nýja göngupalla. Náttúrufræðistofnun segir að þetta hafi sannarlega skilað árangri en um leið að mikið verk sé fyrir höndum. Náttúrufari Þingvalla hefur nefnilega hnignað undanfarið með átroðningi ferðamanna. Þetta er verkefni þjóðgarðsins — verkefni sem mögulega þarf að leysa með róttækum aðgerðum. Hvergi er áníðslan jafn sjáanleg og við Flosagjá. Þar þarf að grípa til róttækra aðgerða og til greina kemur að loka svæðinu eða stýra aðgangi fólks að gjánni. Gert er ráð fyrir að um sjö hundruð þúsund gestir rölti um Almannagjá þetta árið og Ferðamálastofa gerir ráð fyrir að á næstu tíu árum heimsæki um milljón manns svæðið árlega. Eins og svo margir aðrir ferðamannastaðir eru Þingvellir í kapphlaupi við tímann. Í ljósi gríðarlegrar fjölgunar ferðamanna hefur Þingvallanefnd falið þjóðgarðsverði að endurskoða stefnumótun þjóðgarðsins til tuttugu ára. Þar er gert ráð fyrir betra skipulagi, fækkun bílastæða og fleira. „Það var alveg nauðsynlegt að fá faglegt mat á þetta,“ segir Ólafur Örn Baldursson, þjóðgarðsvörður. „Í fyrsta lagi að fá ljóst hvað umfangið væri og síðan að átta sig hvaða blettir væru svo viðkvæmir að mögulega þyrfti að loka.“ Þjóðgarðurinn hefur fengið í kringum tvö hundruð og fimmtíu milljónir á síðustu árum til að sinna nauðsynlegum verkefnum. Ólafur Örn segir að þörf sé á öðru eins á næstu misserum ásamt þrjú hundruð milljónum til að stækka þjónustumiðstöðina á Hakinu. „Það má segja að við séum með þessu að hætta að elta eða reyna að elta hina hraðskreiðu lest ferðamanna, heldur ætlum við að hafa áhrif á hana. Því að auðvitað má þetta ekki vera þannig að þjóðgarðurinn sé rekinn á forsendum ferðamannastraums sem stöðugt eykst. Við hljótum að segja sem svo, það á að reka ferðaþjónustu á forsendum þjóðgarðsins.“
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Sjá meira