Vilja nýtt umhverfismat Þjórsár Svavar Hávarðsson skrifar 18. apríl 2015 12:00 Sérstökum áhyggjum er lýst af Urriðafossvirkjun. vísir/svavar
Stjórn Veiðifélags Þjórsár telur að nýtt umhverfismat sé nauðsynlegt vegna virkjanahugmynda Landsvirkjunar í neðri hluta árinnar. Í nýrri ályktun stjórnar kemur fram að síðan umhverfismat var framkvæmt á árunum 2001 og 2002 hafi laxgengd stóraukist og hrygningarstöðvar og búsvæði vaxið. Sérstaða laxastofnsins í Þjórsá sé mikil enda stærsti sjálfbæri laxastofninn í Norður-Atlantshafi. Nauðsynlegt sé að komið verði í veg fyrir að unninn verði skaði á stofnum árinnar, enda hagsmunir miklir. Félagið krefst þess að væntanlegir framkvæmdaaðilar búi yfir – svo hafið sé yfir allan vafa – fullnægjandi þekkingu á fjölmörgu er varðar stofnstærð, gönguhegðun, áhrif botnfalls í lónum og áhrif gríðarlegra rennslisbreytinga í farvegum milli lóna. Eins hvernig tryggt verður að lágmarksrennsli fari ekki niður fyrir þau mörk sem sannanlega eru fullnægjandi að mati óháðra vísindamanna og Veiðifélags Þjórsár, virkni seiðaveitna og áhrif á lífslíkur fiska sem fara um vélar virkjana, sérstaklega Urriðafossvirkjunar. „Ætla má að ekki sé til sá fiskifræðingur, starfsmenn Veiðimálastofnunar meðtaldir, sem telur að sjóbirtingsstofn Þjórsár muni ekki bíða skaða af tilkomu virkjana í neðri hluta Þjórsár. Engar upplýsingar eru til um stofna né gönguhegðun. Þar af leiðir að ekki er minnst á mótvægisaðgerðir af hendi Landsvirkjunar gagnvart sjóbirtingi og látið eins og hann sé ekki til,“ segir í ályktuninni.
Mest lesið Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Innlent „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Kerfið hafi brugðist Innlent Fleiri fréttir Metfjöldi vill stíga á svið með Íslenska dansflokknum Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Aðeins tíu prósent sem leita til Stígamóta kæra ofbeldið Spyr hvort að Rúv finnist hún „hundleiðinleg t***a“ „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Maðurinn er fundinn Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Sjá meira