Réðst inn á heimili pars og skar þau í framan Jóhann Óli Eiðsson skrifar 26. ágúst 2015 17:06 Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms. vísir/gva
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að karlmaður sæti gæsluvarðhaldi til 21. september næstkomandi. Er honum gert að sök að hafa ráðist að pari með hníf og hamri og veitt þeim áverka. Árásin átti sér stað í Breiðholti þann 15. ágúst. Áður hafði maðurinn verið dæmdur í gæsluvarðhald, til 24.ágúst. Nú var gæsluvarðhaldið lengt af dómstólum. Þann 15. ágúst síðastliðinn var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna líkamsárásar. Árásarmennirnir voru þá á bak og brott en húsráðandi, faðir annars fórnarlambsins, tók á móti lögreglunni. Tjáði hann þeim að ráðist hefði verið á dóttur hans og kærasta hennar. Voru þau bæði skorin í andliti og drengurinn hafði einnig verið skorinn á fæti. Stálu frá þeim flogaveikitöflum Stúlkan greindi frá því við skýrslutöku að hún gerendurnir hafi komið til hennar vegna Lyrica taflna sem hafði verið stolið frá þeim. Komust þeir að því að kærasti hennar hafði stolið töflunum. Eftir að hafa lamið hana hafi þau farið heim til hennar þar sem kærasti hennar var sofandi. Er þangað var komið skar annar mannanna, sá sem var dæmdur í gæsluvarðhald, kærasta hennar með hníf í vinstri fótinn. Á meðan leitaði gerandinn að lyfjunum inn í íbúðinni. Síðar á maðurinn að hafa skorið þau bæði í framan og er gert að sök að hafa einnig lamið þau með hamri. Áður en mennirnir höfðu sig á brott með lyfin, farsíma fólksins, tölvur og ýmis raftæki hafi annar þeirra hótað að myrða fjölskyldur þeirra, nauðga stúlkunni og láta kærasta hennar fylgjast en í kjölfarið myndi hann myrða þau einnig. Mennirnir voru handteknir degi síðar og fann hnífur með blóðkámi í íbúðinni þar sem þeir höfðust við. Einnig hafi fundist blóðug föt, hamar og raftæki þau sem þeir höfðu á brott.Langur brotaferill að baki Í skýrslutöku hjá lögreglu játaði maðurinn að hann hefði vakið drenginn með því að kýla í hann og skera hann í fótinn. Hann neitaði hins vegar að hafa verið með hamar á staðnum og sagði að ekki væri um frelsissviptingu að ræða. Að auki neitaði hann því að hafa rænt nokkrum hlut, hann hefði aðeins tekið hluti sem þau hefðu verið með í láni frá sér. Þann 12. júní síðastliðinn var maðurinn, sem var úrskurðaður í gæsluvarðhald, dæmdur í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Þá veittist hann að manni með hnífi og skar hann á framhandlegg og kinn. Brotaferill hans nái allt til ársins 2005. Dómurinn féllst á þann málflutning saksóknara að full ástæða væri til þess að maðurinn sætti gæsluvarðhaldi á meðan rannsókn stendur yfir. Verður hann því í varðhaldi til 21. september.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Erlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Fleiri fréttir „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Sjá meira