Gæsluvarðhald fellt úr gildi yfir manni sem reyndi að berja djöfla úr konu Birgir Olgeirsson skrifar 14. janúar 2015 16:57
Hæstiréttur Íslands hefur fellt úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem er undir sterkum grun um að hafa ráðist á konu á heimili hennar. Samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur átti maðurinn að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 6. febrúar. Hæstiréttur segir skilyrði gæsluvarðhalds að afbrot geti að lögum varðað tíu ára fangelsi. Var það mat Hæstaréttar að ekki verði talið að því skilyrði sé fullnægt og af þeirri ástæðu var gæsluvarðhaldsúrskurðurinn felldur úr gildi.Sagðist vera Gabríel erkiengill Í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, sem birtur er á vef Hæstaréttar, kemur fram að tilkynnt var til lögreglu að verið væri að ganga í skrokk á konu í íbúð á þriðju hæð. Tilkynnandi hafi verið íbúi fyrir neðan. Þegar lögreglan kom á vettvang hefði maðurinn tekið á móti lögreglunni og verið blóðugur á höndum og í andliti og greinilega í annarlegu ástandi. Hann var strax færðu í handjárn og á meðan talaði hann um að hann væri Gabríel erkiengill og hefði verið að lemja djöfla úr konu. Konan stóð fyrir innan dyrnar og var mjög bólgin í andliti og blóðug, bæði í andlitinu og á fatnaði. Hún tjáði lögreglu strax að maðurinn hefði lamið sig og var hún í kjölfarið flutt á slysadeild. Hún greindi frá því að maðurinn hefði ítrekað haft í líflátshótunum við hana, fyrrum unnusta hennar og börnin hennar.Lögreglustjóri taldi brotið varða 16 ára fangelsi Var það mat lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu að lagaskilyrðum fyrir gæsluvarðhaldi sé fullnægt, enda sé maðurinn undir sterkum grun um að hafa framið brot sem varðað geti allt að 16 ára fangelsi, eða ævilöngu fangelsi, og sé þess eðlis að almannahagsmunir krefjis gæsluvarðhalds. Segir lögreglustjórinn manninn hafa ráðist á konuna með alvarlegum hætt og sparkað meðal annars klæddur skóm í andliti hennar, slegið hana ítrekað í höfuð og reynt að kyrkja hana meðan hann hafi haft í hótunum um að drepa hana.
Mest lesið Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Yfirheyra bandamenn sína í NATO Erlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Innlent Fleiri fréttir Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 Sjá meira