Sjúklingar sendir í of margar krabbameinsmeðferðir Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 8. nóvember 2014 18:52
Tækjaskortur leiðir til þess að dæmi eru um að sjúklingar séu sendir í of margar krabbameinsmeðferðir á Íslandi. Þetta segir fyrrverandi formaður Læknafélagsins sem telur tuttugu ára gamla læknisfræði rekna hér á landi. Birna Jónsdóttir, röntgenlæknir og fyrrverandi formaður Læknafélags Íslands, segir skort á því að tæki séu endurnýjuð á sjúkrahúsum hér á landi farinn að hafa verulega áhrif á þá þjónustu sem sjúklingar fá. „ Við höfum ekki getað tekið inn nýja tækni eins og við hefðum þurft. Þannig að við erum að bjóða upp á úrræði sem voru staðall annars staðar fyrir kannski 20 árum,“ segir Birna. Hún segir að í raun og veru sé rekin tuttugu ára gömul læknisfræði sem hafi það til dæmis í för með sér að krabbameinssjúklingar séu stundum sendir í of margar meðferðir. „ Ef að við ætlum að ganga úr skugga um það hvernig lækning gengur í sumum tegundum krabbameina þá myndi maður eftir fjóra kúra setja sjúklinginn í nákvæma rannsókn á því hvort að allt mein er horfið. Við höfum ekki tækin til þess að gera þetta á Íslandi. Þannig að til öryggis gefum við fimmta kúrinn af krabbameinslyfi sem kannski fer ekkert mjög vel í þig,“ segir Birna. Hún segir jáeindaskanna vera eitt þeirra tækja sem vanti. Það sé næmasta tækið sem geti sýnt hvernig sjúkdómurinn dreifist í líkamanum. „ Við ættum að setja á milli tvö og þrjú þúsund sjúklinga í svona tæki á hverju ári. Ef það væri hérna þá myndum við gera það en við erum kannski að gera á milli eitt eða tvö hundruð svona rannsóknir með því að senda sjúklingana til Danmerkur í myndatöku,“ segir Birna
Mest lesið Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Innlent Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Erlent Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Innlent Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent Trump lokar Kennedy-miðstöðinni í tvö ár „vegna endurbóta“ Erlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Innlent Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Innlent Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent „Njósnasjeik“ keypti Trump-félag og fékk flögur Erlent Fleiri fréttir Vilja ekki óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Boðar aðgerðir gegn brotastarfsemi Samstillt þingnefnd vill taka ESB út úr orðalagi nýrrar stefnu Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita Sjá meira