Ábyrgðarmenn rukkaðir fram yfir gröf og dauða Heimir Már Pétursson skrifar 29. september 2014 12:20 Hætt var að krefjast ábyrgðarmanna á námslán árið 2009 en ábyrgðarmenn eldri lána geta verið eltir til greiðslu allt að dánarbúum þeirra. Frumvarp fyrrverandi menntamálaráðherra til breytinga féll á tíma.
Ábyrgð ábyrgðarmanna á námslánum fylgir þeim fram yfir gröf og dauða. Dæmi eru um að gengið sé að ábyrgðarmönnum ártugum eftir að þeir skrifuðu undir skuldabréf hjá Lánasjóðnum. Námslán sem tekin voru eftir 2009 hafa hins vegar enga aðra baktryggingu en lántakandann. Fréttir hafa verið sagðar af því að undanförnu hvernig fólk sem gekkst í ábyrgð fyrir námslánum ástvina eða ættingja fyrir áratugum er að vakna upp við vondan draum þegar Lánasjóður íslenskra námsmanna (LÍN) gengur að ábyrgðunum. Þannig hefur verið greint frá því að dánarbú ábyrgðarmanns var krafið um greiðslu á námsláni og því má segja að ábyrgðin nái fram yfir gröf og dauða ábyrgðarmannsins. Þá var greint frá því á MBL í gær að kona sem var 19 ára þegar hún gekkst í ábyrgð á námsláni 33 ára kærasta síns er nú tæplega 30 árum síðar krafin greiðslu 2,7 milljóna vegna þessa láns. En hún hefur ekki verið í sambandi við manninn í nær þrjá áratugi. Hún fullyrðir að LÍN hafi ekki sinnt upplýsingaskyldu sinni við hana og er málið á leið fyrir dómstóla. Í menntamálaráðherratíð Katrínar Jakobsdóttur var ákveðið árið 2009 með lögum að hætta að krefjast ábyrgðarmanna vegna námslána, enda eru námslán fyrst og fremst til fjárfestingar í menntun hvers og eins sem aldrei getur nýst nokkrum öðrum sem eign sem hægt er að ganga að. „Já mikið rétt. Þetta var nú tekið til skoðunar á sínum tíma. Ég lagði fram þessa breytingu sem varð að lögum árið 2009 og þá var það metið að það væru ýmis lögfræðileg álitamál sem fylgdu því að afnema ábyrgðirnar aftur í tímann. Þannig að það var tekið það skref að fella niður ábyrgðarmannakerfið frá og með árinu 2009,“ segir Katrín. Síðan hafi verið ráðist í heildarendurskoðun á lögum um lánasjóðinn. „Og meðal þeirra breytinga sem lögð var til í þeirri heildarendurskoðun, sem því miður náði ekki fram að ganga, var að ábyrgðir myndu falla niður á eldri lánum þegar ábyrgðarmaður næði 67 ára aldri,“ segir menntamálaráðherrann fyrrverandi. Þetta frumvarp náði hins vegar ekki afgreiðslu á síðustu dögum ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Námslán geta skipt milljónum og jafnvel tugum milljóna og því getur ábyrgð sem veitt var fyrir mörgum árum og jafnvel áratugum á láni einhvers sem fólk hefur löngu slitið sambandi við, sett fjárhag ábyrgðarmannsins í fulllkomið uppnám og nær jafnvel til dánarbús ábyrgðarmanns. „Einmitt og það hefði þá breyst ef þetta hefði verið samþykkt á sínum tíma. Fyrir utan að það er auðvitað mjög mikilvægt að stjórn lánasjóðsins fái síðan einhverja heimild til að taka á einstökum málum. Þessi heildarendurskoðun lá fyrir á sínum tíma og það er auðvitað hægur vandi fyrir núverandi stjórnarmeirihluta að taka þessi mál upp og taka þau aftur til skoðunar því það er búið að vinna mikla vinnu í þessu,“ segir Katrín Jakobsdóttir.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira