Vilja Þorláksbúð burt frá Skálholtskirkju Garðar Örn Úlfarsson skrifar 9. júlí 2014 07:00 Í Fréttablaðinu í gær kom fram að Þorláksbúðarfélagið fær 11,3 milljónir úr sjóðum kirkjunnar til að gera upp skuld við smið verkefnisins.
Minjastofnun Íslands vill að Þorláksbúð sem stendur við Skálholtskirkju verði tekin niður og flutt annað. Kristín Huld Sigurðardóttir, forstöðumaður Minjastofnunarinnar, segir þó að hafi kirkjan tekið við búðinni og vilji hafa hana áfram á sama stað setji stofnunin sig ekki á móti því. Kristín skrifaði pistil um Þorláksbúð á vef Minjastofnunar þann 17. desember síðastliðinn. Þar rak hún meðal annars að áður en Þorláksbúð var reist hafi verið rætt um að húsið yrði nýtt sem skrúðhús af þáverandi vígslubiskupi, Sigurði Sigurðssyni. Sigurður var einmitt einn forvígismanna Félags áhugamanna um uppbyggingu Þorláksbúðar. Eftir fráfall Sigurðar varð Kristján Valur Ingólfsson biskup í Skálholti.Kristín Huld Sigurðardóttir, forstöðumaður Minjastofnunar Íslands.Fréttablaðið/PjeturBreyting með nýjum vígslubiskupi „Byggingin yfir Þorláksbúð er ekki nýtt af núverandi vígslubiskupi og virðist almennt vera óánægja með húsið á staðnum. Það er ekki vilji Minjastofnunar Íslands að húsið verði áfram þar sem það er nú og var Þorláksbúðarfélaginu tjáð það fyrr á árinu,“ skrifaði Kristín. Í samtali við Fréttablaðið segir Kristín stöðu málsins óbreytta frá í desember. Aðspurð hvort raunhæft sé að flytja Þorláksbúð segir hún hægt að flytja öll hús. Þorláksbúð hafi einmitt verið byggð á loftpúðum og utan um rústir þar undir svo flytja mætti húsið síðar ef ákvörðun yrði tekin um það. Ekkert liggi fyrir um fjármögnun á hugsanlegum flutningi. Kristín segir að gera eigi ráð fyrir lóð undir húsið fjær kirkjunni í nýju deiluskipulagi sem verið sé að vinna fyrir Skálholt. Óljóst eignarhald á Þorláksbúð flæki hins vegar málið. Hafi kirkjuráð í reynd tekið við mannvirkinu og vilji hafa það áfram á sama stað muni Minjastofnun ekki setja sig upp á móti því.Árni Johnsen er einn þriggja forsvarsmanna Þorláksbúðarfélagsins ásamt Agli Hallgrímssyni, sóknarpresti í Skálholti og Geir Waage, sóknarpresti í Reykholti.Fréttablaðið/VilhelmFlutningur er rugl, segir Árni Johnsen Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær samþykkti kirkjuráð að veita 10,3 milljóna króna lán og eina milljón í styrk til Þorláksbúðarfélagsins til að gera upp skuld við smið verkefnisins. Bæði Ragnhildur Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri kirkjuráðs, og Árni Johnsen, einn forsprakka Þorláksbúðarfélagsins, segjast aðspurð telja útilokað að færa Þorláksbúð. „Það er bara rugl,“ segir Árni Johnsen. „Hver einasti steinn er hlaðinn við næsta stein og það er ekki hægt að vera í einhverjum hífingum.“
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent „Ég er mjög kátur“ Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Fleiri fréttir „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Sjá meira