OMAM í óða önn að semja nýja plötu 5. mars 2014 21:19 Nanna Bryndís Vísir/Getty
Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, söngkona í hljómsveitinni Of monsters and men deilir mynd á Instagram-reikningi sínum í kvöld af hljóðfærum sveitarinnar í hljóðveri og tilkynnir að sveitin hafi nýja plötu í bígerð. Sveitin kemur næst fram á Íslandi á tónleikunum Stopp! Gætum garðsins í Hörpu þann 18. mars næstkomandi. Tónleikarnir eru haldnir í þágu íslenskrar náttúru en það eru Náttúruverndarsamtök Íslands og Landvernd sem standa fyrir þeim. Ásamt OMAM koma fram Patti Smith, Lykke Li, Björk, Retro Stefson, Samaris, Mammút og Highlands. Það er ljóst að það verður erfitt fyrir sveitina að fylgja fyrri plötu sinni eftir, My Head is an Animal, en sú plata hefur átt gríðarlegri velgengni að fagna. Í janúar á þessu ári fékk OMAM afhenta platinum-plötu í Bandaríkjunum, en áður hefur hún fengið platínum-plötu í Kanada, á Írlandi, í Ástralíu, á Nýja-Sjálandi og á Íslandi.Björk er eini íslenski listamaðurinn sem hefur áður náð þessum áfanga í Bandaríkjunum.
Tónlist Mest lesið Mamman grét, eiginmaðurinn fraus en Veru var létt Lífið Fullkomið og fór langt fram úr væntingum Lífið Níu ástæður fyrir því að stunda morgunkynlíf Lífið HAF-hjónin breyta vídjóleigu í bakarí Lífið Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið Innlit í nýtt svefnhólfahótel við Hverfisgötu Lífið Millie Bobby Brown og Bongiovi hafa ættleitt stúlku Lífið Ari og Helga Lilja flytja á milli glæsihúsa í Garðabæ Lífið Hörður Björgvin kom Móeiði á óvart Lífið Þungarokkstjarna lést í mótorhjólaslysi Lífið Fleiri fréttir Lög Sálarinnar verða að kvikmynd Enginn fær að skipta sér af tónlist Laufeyjar Tilkynnti tólftu plötuna í hlaðvarpi kærastans „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira