Búnir að veiða um helming af kvóta Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. júlí 2014 07:45 Árni Friðriksson er suður af landinu í rannsóknarleiðangri. fréttablaðið/gva
Makrílveiðar hafa gengið vel það sem af er vertíðinni, sem hófst fyrir um það bil mánuði. Mikil vinna hefur skapast við að vinna makrílinn. Unnið er löngum stundum í Neskaupstað, þar sem Síldarvinnslan er, í Vestmannaeyjum og víðar. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, eða Binni í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum, segir að það séu uppgrip í Eyjum þessa dagana. Næga vinnu sé að fá. „Þetta er ansi mikið ungt fólk sem er í skólum á veturna. Það er sjálfsagt mest svoleiðis,“ segir hann spurður um sumarstarfsmennina. Binni segir að Vinnslustöðin sé nú þegar búin að veiða rúmlega sex þúsund tonn af tólf þúsund tonna kvóta sem fyrirtækið fékk úthlutað. Sennilegt sé að fyrirtækið fái tvö þúsund tonn í viðbót. Það þýðir að Vinnslustöðin fær 10% af heildarmakrílkvóta Íslendinga. Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson er þessa dagana í makrílleit og var djúpt suðaustur af landinu, þegar Fréttablaðið náði tali af áhöfninni í gær. Sveinn Sveinbjörnsson, leiðangursstjóri á skipinu, segir að búð sé að fara um Norðurlandið og Austfirðina og um Suðausturland. Hann segir að það hafi ekki sést mikið við norðanvert landið. „Við erum að sjá meira af makríl fyrir Austurlandi og Suðausturlandinu.“ Árni Friðriksson mun svo rannsaka meira undan Suður- og Suðvesturlandi og Sveinn segir ekki hægt að segja til um stöðu makrílstofnsins fyrr en ferðinni er lokið. Þá verði hægt að fá heildarmynd af stöðunni. Ferðin á Árna Friðrikssyni hófst ellefta júlí og reiknað er með að henni verði lokið ellefta ágúst. Þá verður farið í leiðangur í grænlenskri lögsögu. „Grænlendingar leigja skipið í tólf daga,“ segir Sveinn.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Sjá meira