Svipta Blönduós atkvæðisrétti í veiðifélagi um Blöndu Garðar Örn Úlfarsson skrifar 16. júlí 2014 07:00 Blönduósbær á tæplega 12 prósenta hlut í veiðinni í Blöndu, meðal annars í gegn um jörðina Kleifar, en á ekki að hafa atkvæðisrétt í veiðifélaginu, segir stjórn félagsins. Fréttablaðið/GVA „
Við höfum mikilla hagsmuna að gæta og þótt ég hafi haft ávæning af þessu hefði átt að láta okkur vita,“ segir Arnar Þór Sævarsson, bæjarstjóri á Blönduósi, um þá ákvörðun stjórnar Veiðifélags Blöndu og Svartár að svipta bæinn atkvæðisrétti í félaginu. Niðurstaða stjórnar veiðifélagsins var rædd í byggðaráði Blönduóss sem lýsti furðu yfir ráðstöfuninni, „sérstaklega í ljósi þess að Blönduósbær á um 11,6 prósent hluta í arðskrá félagsins,“ bókaði byggðaráðið. „Ég furða mig nú á þessari yfirlýsingu hjá þeim,“ segir Sigurður Ingi Guðmundsson á Syðri-Löngumýri, formaður Veiðifélags Blöndu og Svartár, um ályktun byggðaráðsins. Sigurður segir að í lögum um lax- og silungsveiði segi mjög glöggt að þeir sem eigi atkvæðisrétt séu það sem töldust lögbýli árið 1976.Arnar Þór SævarssonVeiðirétturinn skilinn frá „Blönduós á tvö lögbýli og ætti þess vegna að vera með tvö atkvæði en þeir virðast hafa tekið veiðiréttinn undan býlunum og fært hann undir Blönduós af einhverri vangá einhvern tímann,“ útskýrir formaðurinn sem kveðst hafa rætt málið nokkrum sinnum við bæjarstjórann og þáverandi forseta bæjarstjórnar. Sigurður segir að meðal annars hafi verið rætt um hvort Blönduós gæti skilað veiðiréttinum á lögbýlin tvö, Hnjúka og Kleifar. Einnig hafi verið spurst fyrir um skýringar á því hvers vegna rétturinn hafi verið tekinn undan lögbýlunum en þær hafi hann ekki fengið. „Þetta er allt í góðu og ég var búinn að leita leiða með bæjarstjóra til að koma lagi á þetta. Þess vegna undra ég mig á þessari yfirlýsingu hjá þeim því þetta kom þeim ekkert á óvart,“ undirstrikar Sigurður. „Blönduós er stærsti aðilinn í veiðifélaginu og mjög óeðlilegt að hann sé ekki með atkvæðisrétt en við getum ekkert annað en farið eftir lögum sem gilda.“Eigum minnst eitt atkvæði segir bæjarstjórinn Arnar Þór bæjarstjóri segir alveg öruggt að Blönduósbær eigi í það minnsta eitt atkvæði í gegn um Hnjúka. Varðandi Kleifar sé óljósara með atkvæðisréttinn því bærinn hafi tekið veiðiréttindin undan jörðinni þegar þar var stofnað nýbýli á öldinni sem leið. Þá sé hugsanlegt að bærinn eigi atkvæði í gegn um Enni og Hjaltabakka því bærinn sé byggður á hluta úr þeim jörðum. Stjórn veiðifélagsins gefur frest til 31. ágúst til að gera athugasemdir við nýju atkvæðaskrána. „Við erum að skoða þetta í rólegheitunum og munum gefa okkur þann tíma sem við þurfum,“ segir bæjarstjórinn.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Sjá meira