Áhrif á lífríki ráðast af lengd eldgossins Svavar Hávarðsson skrifar 20. nóvember 2014 07:00 Engin merki eru um að eldgosinu ljúki á næstunni og mengun frá því er stöðug og mikil. Mynd/Morten S. Riishuus
Áhrif brennisteinsmengunar frá eldgosinu í Holuhrauni á vatnalíf og fisk ráðast fyrst og síðast af því hversu lengi gosið mun standa. Aðkallandi er að hefja undirbúning að mælingum í ám og vötnum vegna mengunarinnar. Guðni Guðbergsson, sérfræðingur hjá Veiðimálastofnun, segir það aðkallandi spurningu hvort gríðarlegt magn brennisteinstvíildis (SO2), sem kemur frá eldstöðinni í Holuhrauni, kunni að hafa áhrif á lífríki ef heldur fram sem horfir. Guðni segir að lengd gossins sé lykilspurningin. „Þetta er ekki einfalt og mörg ef. Stóra efið er hversu lengi kemur þessi eldur til með að standa og hversu mikið losnar og fellur á landi,“ segir Guðni en útskýrir að líklega þurfi nokkuð til að breytingar verði sem ógna lífríki. „Í Skandinavíu, þar sem mengunin kom frá iðjuverum, var raunin sú að súrt regn hlóðst upp í snjó og útslag kom í leysingum, þ.e. sýrustig vatns lækkaði. Það gat verið banvænt sumum tegundum á þeim tíma sem leysingar stóðu en ástand utan þess almennt undir hættumörkum,“ segir Guðni. Mikið hefur dregið úr þeirri mengun með minni notkun kola og með auknum kröfum um notkun minna mengandi orkugjafa. Enn finnast áhrif súrnunar í ám og vötnum t.d. í suðurhluta Skandinavíu og á austurströnd Kanada. Guðni telur mikilvægt að fara að huga frekar að mælingum í ám og vötnum ekki síst því sem viðkemur skipulagningu og fjármögnun slíkra mælinga, og fylgjast þurfi sérstaklega með vatni í leysingum og í snjó, en það er til marks um hversu alvarlegum augum þessi mengun er litin, að Veðurstofa Íslands hefur þegar hafið mælingar á sýrustigi í úrkomu á nokkrum stöðum. Veiðimálastofnun hefur fyrr í vetur bent á að í eldgosum hér á landi hefur vatnalíf skaðast af efnum frá gosösku sem losnar með úrkomu og fer í vötn. Talsverður skaði varð vegna þessa í eldgosinu í Eyjafjallajökli og svo í Grímsvatnagosinu síðasta. Þá eru þekkt dæmi um dauða fiska vegna efnamengunar í öskufalli frá Heklu, t.d. á húnvetnsku heiðunum bæði árið 1970 og 1980.Brennisteinssýran er áhyggjuefnið Þegar brennisteinn kemur í vatn myndast brennisteinssýra sem hefur áhrif á sýrustig þess. Sýrustig er mælt sem pH-gildi þar sem 7 er hlutlaust, undir 7 súrt og yfir 7 basískt. - Íslenskt vatn er yfirleitt basískt, með hátt pH gildi, og þarf því meira til að slíkt vatn verði súrt. Vatn á jarðfræðilega yngri hluta landsins, það er gosbeltinu, er yfirleitt basískara og þolir því meiri sýru. - Lágt sýrustig getur valdið því að ákveðnum tegundum lífvera í ferskvatni fækkar eða að þær hverfi. Fall í sýrustigi veldur auknum leysanleika á áljónum (Al) en leysanleiki áls er minnstur við pH 7 en eykst í báðar áttir. Ál getur síðan haft áhrif á og skemmt tálkn í fiskum og valdið auknum afföllum og dauða þeirra. Gönguseiði laxa eru viðkvæm fyrir slíku þegar þau ganga til sjávar þar sem tálkn gegna veigamiklu hlutverki við að viðhalda seltuvægi.
Mest lesið Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Erlent Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Innlent Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Erlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Fleiri fréttir Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Halla vill að hér verði tekin upp samfélagsþjónusta Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Sjá meira