Kristinn Jakobsson: Menn þurfa að lifa með þessu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. október 2014 07:00 Kristinn Jakobsson hefur verið fremsti dómari Íslands um langt árabil. Vísir/Valli „
Ég er fullkomlega sáttur. Þegar ég byrjaði óraði mig ekki fyrir því að ég myndi eiga þá vegferð sem ég átti. Ég er löngu búinn að taka þá ákvörðun að hætta og er hún tekin í fullri sátt við alla aðila.“ Þetta segir Kristinn Jakobsson, einn allra fremsti knattspyrnudómari sem Ísland hefur átt. Hann dæmdi sinn síðasta leik hér á landi er Stjarnan tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn eftir 2-1 sigur á FH í ótrúlegum úrslitaleik liðanna í lokaumferð Pepsi-deildar karla. Leikurinn hafði alla þá dramatík sem hægt var að ímynda sér. Rautt spjald, rangstöðumark, hvert dauðafærið á fætur öðru og sigurmark í uppbótartíma úr vítaspyrnu. „Þetta var virkilega gaman,“ segir Kristinn en flestir ímynda sér að það hefði tekið á dómarann að halda fullri einbeitingu í þessum aðstæðum enda hafa aldrei fleiri mætt á deildarleik á Íslandi. „Þetta voru aðstæður sem maður þekkir eingöngu frá öðrum löndum og það var frábært að fá tækifæri til að taka þátt í því. Sannur heiður.“ Hann segir ekki erfitt að eiga við tilfinningarnar, hvorki sínar né annarra, þegar jafn mikið er í húfi og var á Kaplakrikavelli á laugardag. „Dómarar hafa aðeins sekúndubrot til að taka sínar ákvarðanir og sú reynsla sem maður hefur stuðlar að því að flestar eru þær réttar. Auðvitað má deila um einhverjar þeirra – þannig er bara gangur lífsins.“ Kristinn hikaði ekki við að dæma Kassim Doumbia brotlegan þegar hann fór utan í Ólaf Karl Finsen, leikmann Stjörnunnar, í uppbótartíma leiksins. Allt ætlaði um koll að keyra en Kristinn stóð fastur á sínu og gerir enn. „Ég sá bara brotið og flautaði. Það eru ósjálfráð viðbrögð hjá mér og annað skiptir engu máli, hvorki hvaða lið á í hlut eða á hvaða mínútu atvikið gerðist,“ segir Kristinn. Fyrr í leiknum gerði Sigurður Óli Þórleifsson, annar aðstoðardómara Kristins, mistök þegar hann flaggaði ekki Ólaf Karl rangstæðan í fyrra marki Stjörnunnar. Kristinn segir að Sigurður Óli hafi verið fyrstur manna til að viðurkenna mistökin þegar hann sá atvikið í sjónvarpi. „Svona lagað er eins og að brenna af víti í úrslitaleik. Menn þurfa að lifa með þessu,“ sagði Kristinn. Eftir leikinn gekk mikið á. Leikmenn og áhorfendur gerðu sig líklega til að veitast að dómurum. Kristinn segir að sér hafi ekki liðið illa á því augnabliki. „Ég þrífst undir pressu og geri það sem stjórnandi í mínu fyrirtæki á hverjum degi. Þetta er eitthvað sem gerist í hita leiksins og maður stjórnar ekki utanaðkomandi áhrifum frekar en veðrinu.“ Kristinn segir engan vafa á því að leikur og FH og Stjörnunnar muni lifa lengi í minningunni. „Þessi leikur mun alltaf standa upp úr hjá mér, hvort sem er daginn eftir leik eða eftir 50 ár ef ég verð svo lánsamur að lifa svo lengi.“ Kristinn, sem er 45 ára, gæti haldið áfram að dæma hér á landi í fimm ár til viðbótar en um áramótin dettur hann út af lista Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, sem milliríkjadómari sökum aldurs. „Það hefur alltaf verið gulrót fyrir mig að dæma erlendis. Ég hef dæmt flesta leiki á Íslandi oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Því tel ég tímabært að ég snúi mér að öðrum störfum í dómaraumhverfinu og fari að gefa eitthvað til baka með því að miðla minni reynslu til yngri dómara. Hann segir margt eftirminnilegt eftir langan feril í dómgæslu. „Líklega stendur upp úr að hafa dæmt í Meistaradeild Evrópu. Þá var gaman að vera einn af afar fáum sem fengu að starfa í úrslitakeppni EM 2008,“ segir Kristinn og bætir við að dómgæslan hafi gert honum kleift að starfa í öllum Evrópulöndunum nema þremur. Þá rifjaði hann upp hvar hann var staddur 10. september 2001. „Ég var á leið til Trínidad og Tóbagó til að dæma og millilenti í New York. Ég hitti félaga minn og við fórum upp í tvíburaturnana aðeins nokkrum klukkutímum áður þeim var grandað. Þar var ég staddur bara út af því að ég var að fara að dæma knattspyrnuleikKristinn sýnir Veigari Páli Gunnarssyni, fyrirliða Stjörnunnar, rauða spjaldið í úrslitaleiknum á laugardaginn.Vísir/Andri Marinó
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Jóhannes Valgeirsson: "Hræðileg ákvörðun“ "Þetta er agaleg ákvörðun,“ segir Jóhannes Valgeirsson. 4. október 2014 16:54 Flaggið sem aldrei fór á loft verður sent í viðgerð til útlanda Stuðningsmaður FH veittist að aðstoðardómaranum Sigurði Óla Þorleifssyni. 5. október 2014 18:18 Kristinn Jakobsson dæmir úrslitaleikinn Síðasti leikur Kristins í íslenska boltanum, en hann leggur flautuna endanlega á hilluna um áramótin. 3. október 2014 08:30 Doumbia trylltist eftir leik | Myndband Malímaðurinn átti erfitt með sig eftir að Stjarnan varð Íslandsmeistari. 4. október 2014 18:54 Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: FH - Stjarnan 1-2 | Stjarnan meistari í fyrsta sinn Ólafur Karl Finsen tryggði Stjörnunni fyrsta Íslandsmeistaratitilinn með marki í uppbótartíma. 4. október 2014 00:01 Mest lesið Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Fótbolti Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fótbolti Á sama sviði og hetjurnar: „Verður ótrúlega skemmtilegt að upplifa“ Golf „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fleiri fréttir Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Sjá meira
Jóhannes Valgeirsson: "Hræðileg ákvörðun“ "Þetta er agaleg ákvörðun,“ segir Jóhannes Valgeirsson. 4. október 2014 16:54
Flaggið sem aldrei fór á loft verður sent í viðgerð til útlanda Stuðningsmaður FH veittist að aðstoðardómaranum Sigurði Óla Þorleifssyni. 5. október 2014 18:18
Kristinn Jakobsson dæmir úrslitaleikinn Síðasti leikur Kristins í íslenska boltanum, en hann leggur flautuna endanlega á hilluna um áramótin. 3. október 2014 08:30
Doumbia trylltist eftir leik | Myndband Malímaðurinn átti erfitt með sig eftir að Stjarnan varð Íslandsmeistari. 4. október 2014 18:54
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: FH - Stjarnan 1-2 | Stjarnan meistari í fyrsta sinn Ólafur Karl Finsen tryggði Stjörnunni fyrsta Íslandsmeistaratitilinn með marki í uppbótartíma. 4. október 2014 00:01