Harma neikvæða og villandi umræðu Stefán Árni Pálsson skrifar 7. október 2014 15:03 Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB visir/stefán
Stjórn BSRB hefur sent frá sér ályktun þar sem fjallað er um neikvæða og villandi umræði í garð opinberra starfsmanna. Stjórnin mun í dag og á morgun funda á Akureyri. Í ályktun stjórnar sem samþykkt var á fundi hennar fyrr í dag segir m.a.: „Stjórn BSRB krefst þess að umræða um rekstur ríkisins og opinbera starfsmenn byggi á staðreyndum en ekki ósönnum fullyrðingum, sem virðast vera settar fram í þeim tilgangi að réttlæta frekari niðurskurð og skerða réttindi opinberra starfsmanna.“ Hér að neðan má lesa ályktunina í heild sinni:Stjórn BSRB harmar þá neikvæðu og villandi umræðu sem hefur verið áberandi í garð opinberra starfsmanna á undanförnum vikum.Störfum á vegum ríkisins hefur fækkað um meira en 10% frá efnahagshruni. Þrátt fyrir mikla fækkun starfsfólks hefur stofnunum ríkisins verið gert að halda óbreyttu þjónustustigi. Yfirgnæfandi meirihluti opinberra starfsmanna sinnir grunnstoðum samfélagsins. Þeir veita heilbrigðisþjónustu og umönnun, tryggja öryggi okkar og veita menntun. Það fólk sem í almannaþjónustunni starfar hefur frá efnahagshruni lagt á sig ómælt erfiði til að halda grunnþjónustu landsins gangandi.Þrátt fyrir það hefur hluti kjörinna fulltrúa reglulega vegið gróflega að starfsheiðri þessa fólks með mjög ósanngjörnum hætti. Ítrekað hafa rangfærslur um réttindi opinberra starfsmanna, kjör þeirra og fjölda verið sett fram sem sannindi. Allt tal um frekari fækkun opinberra starfsmanna myndi aftur á móti kalla á gjörbreytta þjóðfélagsmynd – skert öryggi, lakari menntunarmöguleika og veikara heilbrigðiskerfi.Stjórn BSRB krefst þess að umræða um rekstur ríkisins og opinbera starfsmenn byggi á staðreyndum en ekki ósönnum fullyrðingum, sem virðast vera settar fram í þeim tilgangi að réttlæta frekari niðurskurð og skerða réttindi opinberra starfsmanna.
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Innlent Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira